Advertisement
Jóga og núvitundar námskeið fer af stað 3. Febrúar Í Lífspekifélaginu. Námskeiðið verður 1x í viku á þriðjudögum í 1,5 klst í senn frá 17:00-18:30 í 4 vikur, einnig er nemendum frjálst að senda kennara spurningar á milli tíma.Ég mun leiða námskeiðið en sem jógakennari og meistaranemi í klínískri sálfræði er ég mjög spennt að leiða saman þessa tvo hesta. Iðkað verður jóga í fyrri hluta tímans og farið í grunninn í líkamlegum jóga æfingum. Í seinni hluta tímans er farið yfir jóga heimspeki og núvitundar hugleiðslu aðferðir, en ég verð sjálf nýkomin heim úr 10 daga Vipassana hugleiðsluferð.
Í lokin er hvatt til sjálfsskoðunar og hvernig iðkendur geta fært sitjandi hugleiðslu æfinguna yfir í daglegt líf og þannig innleitt jóga inn í sinn lífsstíl.
Námskeiðið er tilvalið fyrir þau sem hafa áhuga á að iðka jóga og hugleiðslu í hverslags formi sem er, tilvalið fyrir þau sem vilja finn ögn meiri ró og kyrrð í sínu lífi.
Verðið er 17.000 kr og skráning fer fram í gegnum [email protected]
Greiðist inn á 0117 26 80949 1207893849
Ef einhverjar spurningar vakna er hjartanlega velkomið að senda póst eða skilaboð :)
Athugið að hvorki tölvupóstum né skilaboðum verður svarað frá 7. - 18. janúar vegna Vipassana.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Lífspekifélagið, Ingólfsstræti 22, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











