Advertisement
Matur klukkan 19 og erindið um Grænland sem heitir Kalaallit Nunaat á grænlesku hefst klukkan 20.Öll velkomin sem vilja fræðast um sögu Grænlands til þess að setja atburði líðandi stundar í samhengi!
Bjarni Ólafsson er sagnfræðingur og sögukennari. Hann hefur ferðast mikið um Grænland og stúderað sögu landsins.
Í erindinu mun Bjarni fjalla um sögu Grænlands með áherslu á norræn áhrif á miðöldum og í seinni tíma.
Vegna góðra undirtekta síðast endurtökum við matseðilinn: Linsubaunasúpa, gulrótarbrauð og salat. Eplakaka með rjóma, te og kaffi í eftirmat. Maturinn kostar 2000 krónur.
Friðarhús er á horni Snorrabrautar og Njálsgötu.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Friðarhúsið, Reykjavík, Iceland
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











