Advertisement
Kæru félagar,Við ætlum að hafa spennandi fagfund fagdeildar um forystu í hjúkrun sem fer fram 16. apríl kl. 17:00–19:30 á Suðurlandsbraut 22
👉 Skráning nauðsynleg
https://forms.office.com/e/8zRzyN12ib
Yfirskrift fundarins er „Innsæi og kjarkur leiðtoga“ þar sem kastljósinu er beint að því hvernig innsæi, ígrundun og meðvituð nálgun styðja við ákvarðanatöku og leiðtogahlutverk í hjúkrun.
🔹 Hrund Gunnsteinsdóttir, fyrirlesari og ráðgjafi, fjallar um hvernig innsæi getur eflt leiðtogahæfni og hjálpað okkur að greina mynstur í flóknum aðstæðum
🔹 Helga Sif Friðjónsdóttir, sérfræðingur í geðhjúkrun, ræðir leiðtogahlutverkið með áherslu á kjark, tengsl og mikilvægi þess að hlusta
🔹 Ásgeir Valur Snorrason, sérfræðingur í svæfingarhjúkrun og flestum vel kunnugur, endar á léttum og skemmtilegum nótum
Að fundi loknum verða léttar veitingar, búbblur og notaleg samvera.
Vonumst til að sjá sem flesta og við biðjum ykkur að skrá ykkur
Bestu kveðjur,
Stjórn fagdeildar um forystu í hjúkrun
Advertisement
Event Venue
Suðurlandsbraut 22 , 108 Reykjavík, Iceland, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











