Advertisement
Þriðjudaginn 7. apríl kl. 12 bjóðum við ykkur velkomin á næstu hádegistónleika í Hafnarborg en þá verður Margrét Hrafnsdóttir gestur Antoníu Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda tónleikaraðarinnar. Þá munu þær kynna Vínartónlist eða óperettur eftir tónskáldin Sieczyński, Stolz, Strauss og Lehár en yfirskrift tónleikanna að þessu sinni er „Dillandi“.Margrét Hrafnsdóttir, sópran, tekur virkan þátt í tónleikahaldi hér á landi og hefur meðal annars frumflutt verk eftir þau Ingibjörgu Azima, Oliver Kentish og Steingrím Þórhallsson. Hún hefur hlotið styrk hjá Wagnerfélaginu í Stuttgart og Hlaðvarpanum, Tónlistarsjóði og einnig hlotið Listamannalaun. Margrét hefur haldið einsöngstónleika í Þýskalandi, Sviss, Ítalíu, Danmörku og Svíþjóð með efnisskrám sem spanna allt frá sjaldheyrðum verkum að þjóðlögum og margbreytilegri og dramatískri leikhús- og óperutónlist.
Árið 2007 gaf hún ásamt Ólöfu Sigursveinsdóttur, sellóleikara, út plötuna Hjartahljóð, íslensk þjóðlög. Árið 2015 kom svo út platan Vorljóð á Ýli með lögum eftir Ingibjörgu Azima í útsetningum fyrir óhefðbundna kammersveit með fagotti, harmonikku, klarinetti, kontrabassa og sellói. Í október 2025 kom út platan LOGN, einnig með tónlist eftir Ingibjörgu. Margrét hefur einnig sungið hlutverk í íslenskum óperum, meðal annars hlutverk Freyju í Þrymskviðu eftir Jón Ásgeirsson og Nornina í Ár og öld eftir Þórunni Guðmundsdóttur. 19. október síðastliðinn frumflutti hún á Óperudögum ásamt Hrönn Þráinsdóttur, píanóleikara, Didda Guðnasyni, slagverksleikara, og Justin Mange, hornleikara, óperuna eða söguljóðið Urta eftir Ingibjörgu Azima við texta Gerðar Kristnýjar.
Antonía Hevesi, píanóleikari, hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg, sem hafa verið fastur liður í dagskrá safnsins síðan 2003. Þar hefur Antonía fengið til liðs með sér marga af fremstu söngvurum landsins en markmiðið með tónleikunum að veita gestum tækifæri til að njóta lifandi tónlistarflutnings í góðu tómi. Þá fara hádegistónleikarnir að jafnaði fram fyrsta þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Húsið opnar kl. 11:30 og tónleikarnir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.
---
Midday Concert – Margrét Hrafnsdóttir with Antonía Hevesi
Tuesday April 7th at 12 p.m., we warmly welcome you to the next Midday Concert at Hafnarborg, when Margrét Hrafnsdóttir will be the guest of Antonía Hevesi, pianist and artistic director of the concert series. On this occasion, they will present Viennese music, or operettas, by the composers Sieczyński, Stolz, Strauss and Lehár.
Margrét Hrafnsdóttir, soprano, is an active performer on the Icelandic concert scene and has, among other things, premiered works by Ingibjörg Azima, Oliver Kentish and Steingrímur Þórhallsson. She has received grants from the Wagner Society in Stuttgart, Hlaðvarpinn, the Music Fund and has also received support from the Artists’ Salary Fund. Margrét has given solo concerts in Germany, Switzerland, Italy, Denmark and Sweden, spanning everything from rarely heard works to folk songs and varied and dramatic theatre and operatic music.
In 2007, together with the cellist Ólöf Sigursveinsdóttir, she released the album Hjartahljóð, íslensk þjóðlög. In 2015, the album Vorljóð á Ýli was released, featuring songs by Ingibjörg Azima in arrangements for an unconventional chamber ensemble with bassoon, accordion, clarinet, double bass and cello. In October 2025, the album LOGN, also with music by Ingibjörg, was released. Margrét has also sung roles in Icelandic operas, including Freyja in Þrymskviða by Jón Ásgeirsson and the Witch in Ár og öld by Þórunn Guðmundsdóttir. On October 19th last year, she premiered, at Opera Days together with the pianist Hrönn Þráinsdóttir, the percussionist Diddi Guðnason and the horn player Justin Mange, the opera or narrative poem Urta by Ingibjörg Azima to a text by Gerður Kristný.
Antonía Hevesi, pianist, has since the beginning served as the artistic director of the Midday Concert series at Hafnarborg, which has been a regular part of the museum’s programme since 2003. In this role, Antonía has collaborated with many of the country’s leading vocalists, with the aim of offering visitors the opportunity to enjoy live music performances at a relaxed pace. The Midday Concerts are generally held on the first Tuesday of each month during the winter season.
The concert starts promptly at 12 p.m., lasting for approximately half an hour. The doors open at 11:30 a.m. and the concert is open to all, as long as seating is available. Free entry.
Advertisement
Event Venue
Strandgata 34, 220 Hafnarfjörður, Iceland, Strandgata 34, 220 Hafnarfjarðarkaupstaður, Ísland, Hafnarfjörður, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.






