Advertisement
Hvað segja börn og ungmenni um styrkleika og áskoranir í lífi sínu? er yfirskrift málþings Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar sem fer fram þriðjudaginn 12. nóvember kl. 14. - 17 í Hátíðarsal aðalbyggingar Háskóla Íslands.Þar verða kynntar niðurstöður úr spurningalistakönnun ÍÆ sem lögð var fyrir í grunnskólum vorið 2024.
Á málþinginu verður gefið heildaryfirlit yfir þá fjölmörgu þætti sem spurt er um í rannsókninni en jafnframt munu fulltrúar sveitarfélaga og stofnana sem nýta ÍÆ gögnin taka þátt í pallborði. Rætt verður um þau málefni barna og ungmenna sem helst brenna á þeim sem starfa með þeim, koma að stefnumótun í málefnum þeirra eða stunda rannsóknir á þessu sviði. Málþingið er það fyrsta í röð árlegra málþinga ÍÆ þar sem kynntar verða niðurstöður rannsóknarinnar https://iae.is/
Takið daginn frá og verið öll hjartanlega velkomin!
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Háskóli Íslands, Sæmundargötu 2,Reykjavík, Iceland