Advertisement
Magnús Þorkell Bernharðsson, miðausturlandafræðingur við Williams College í Bandaríkjunum, flytur hátíðarfyrirlestur Hugvísindaþings 2026 við setningu þingsins í Hátíðasal í Aðalbyggingu, föstudaginn 13. mars kl. 12:00-13:00. Verið öll velkomin. Skoða dagskrá Hugvísindaþings: hugvis.hi.is/is/hugvisindathingTitill fyrirlestursins er Hvað má og hvað má ekki? Akademískt frelsi á tímamótum.
Í kjölfar stríðsins á Gaza 2023, endurkjörs Donalds Trump 2024 og nýrra upplýsinga úr Epstein-skjölunum 2026 standa akademískar stofnanir nú höllum fæti. Vegið er að starfsumhverfi fræðimanna, fjárveitingar eru skertar eða stöðvaðar, og náið er fylgst með námsframboði og félagsstarfi á háskólasvæðinu. Þessar víglínur eru hvað skýrastar í bandarísku samfélagi enda hefur atlaga stjórnvalda gegn bandarískum akademískum stofnunum verið óvenjulega hörð. Stórfelldar breytingar eru að eiga sér stað og pressan er gífurleg, ekki síst í málaflokkum sem tengjast kyni, kynþáttafordómum, innflytjendum og fjölmenningu.
Í þessum fyrirlestri mun Magnús Þorkell Bernharðsson, sem hefur starfað í bandarísku umhverfi í um 30 ár, fjalla um þessar miklu breytingar, ekki síst út frá hans fræðigrein, sem er saga Mið-Austurlanda. Sú fræðigrein hefur oft verið bitbein stjórnmálamanna og hagsmunaafla en nú er staðan allt önnur og öllu alvarlegri. Hver er staða málfrelsis í bandarískum háskólum? Hver er ábyrgð háskólanna á þessum erfiðu tímum? Er þetta álíka og Evrópa 1937? Hvað má og hvað má ekki? Hvaða áhrif munu þessar breytingar, sem eru að eiga sér stað í Bandaríkjunum, hafa á evrópskar stofnanir og íslenska fræðimenn?
Advertisement
Event Venue
Háskóli Íslands, Sæmundargata 4, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











