Advertisement
Los Bomboneros, hinir glaðbeittu sendiherrar íslenskrar latíntónlistar, efna til einstakra stórsveitartónleika þann 11. október í Salnum í Kópavogi. Þar stýrir Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir stórsveitarútgáfu hljómsveitarinnar – Los Bombasticos – sem mun flytja margar helstu perlur Tómasar R. Einarssonar en þennan ástsæla lagahöfund og bassaleikara má með sanni kalla Latínbónda Íslands.Í lögum Tómasar frá meira en 40 ára ferli fléttast saman djass, íslenskur stormur og kúbanskur hiti. Á þessum óvenjulegu tónleikum munu helstu stórsveitarútsetjarar landsins klæða lögin í skæran og litríkan stórsveitarbúning og gestasöngvararnir Mugison og GDRN setja mark sitt á lög Tómasar með seiðmagnaðri nærveru sinni.
Missið ekki af þessu einstaka tækifæri í Salnum í Kópavogi til að upplifa íslenska latínmúsík og stórsveitarkraft fléttast saman í töfrandi tónlistarupplifun!
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Hamraborg 6, 200 Kópavogur, Iceland, Hamraborg 6, 200 Kópavogsbær, Ísland, Kopavogur, Iceland
Tickets