Advertisement
Vertu velkomin í djúpa og nærandi 80 mínútna gusu fyrir líkama og sál.Við byrjum á bolla af hjartaopnandi kakói frá Guatemala sem hjálpar okkur að mæta mjúklega inn í stundina og tengjast okkur sjálfum. Að því loknu taka við þrjár kraftmiklar gusulotur þar sem lifandi möntrusöngur leiðir okkur inn á við. Hægt er að taka undir sönginn og leyfa röddinni að bera okkur í gegnum hitann, inn í kyrrð og dýpri tengingu. Á milli lotna gefst tími til að kæla sig úti í fersku lofti eða taka dýfu í sjónum fyrir þá sem vilja.
Eftir þriðju lotu endum við kvöldið í slakandi tónabaði þar sem líkaminn fær að lenda rólega og hugurinn að fá hvíld.
Markmiðið er að sleppa taki, róa hugann og gleyma sér í hita, takti og tónum.
Leiðbeinendur
Eygló Scheving er tónlistarkona, jógakennari og tónheilari. Hún hefur ástríðu fyrir möntrusöng og tónlist sem styður við innri ró, tengingu og jafnvægi. Hún leiðir möntrukór sem hittist vikulega og skapar rými fyrir sameiginlega söngupplifun.
Guðmundur Már Einarsson er hot yoga kennari með mikla reynslu af vinnu með líkamann í hita. Hann þekkir vel áhrif hitans á líkama og huga og hefur lagt stund á nám í jógafræðum og shamanisma í Bandaríkjunum og Kosta Ríka.
Bæði hafa þau lokið gusumeistaranámi og sameina hér krafta sína til að skapa einstaka og nærandi upplifun.
miðasala á www.fargufa.is
Advertisement
Event Venue
Kría fargufa, Gufunes,Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











