Advertisement
Stórsveit Reykjavíkur heldur sína árvissu og vinsælu nýárstónleika í Eldborg. Tónleikarnir eru helgaðir swingtímabilinu, 1930-50, þegar stórsveitir réðu ríkjum í tónlistarheiminum og stjórnendur, söngvarar og einleikarar voru poppstjörnur síns tíma. Ný og spennandi efnisskrá á hverju ári úr nótnabókum stórsveita Glenn Miller, Benny Goodman, Duke Ellington, Count Basie, Woody Herman, Tommy Dorsey og fleiri. Einungis eru fluttar upprunalegar útsetningar og ekkert er sparað til að gera þennan atburð sem glæsilegastan. Gestasöngvarar ársins eru þau Bjarni Arason, Hildur Vala Einarsdóttir og Selma Björnsdóttir. Sigurður Flosason stjórnar og kynnir.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.







