Advertisement
Laugardaginn 13. desember n.k. mun Stefán Pálsson sagnfræðingur og félagsmaður í Ásatrúarfélaginu halda erindi í tilefni útgáfu myndasögunnar Sýnir Völvunnar sem kom út á dögunum.Myndasagan er fimmtánda og síðasta bókin í sagnaflokknum um Goðheima (danska: Valhalla) eftir Peter Madsen.
Eftir langa bið er sagnaflokknum loksins lokað á íslensku. Þessar frábæru myndasögur hafa mótað hugmyndir heilu kynslóðanna um Æsi og norræna goðafræði.
Í erindinu verður fjallað um útgáfusögu þessara merkilegu dönsku myndasagna sem hófu göngu sína sem verkefni kornungra manna sem vildu búa til svar Dana við Ástríksbókunum eða Lukku-Láka en endaði í djúpri rannsókn á norrænum sagnaarfi.
Erindi Stefáns er ókeypis og opið öllum en húsið opnar kl 14:00. Það er takmarkað framboð af sætum svo best að mæta tímanlega.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Menntasveigur 15, 102 Reykjavík, Iceland, Menntasveigur 15, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











