Garðaprjón

Wed Jun 24 2026 at 03:00 pm to 05:00 pm UTC+00:00

Austurvöllur | Reykjavík

Fl\u00f3\u00f0 & fjara
Publisher/HostFlóð & fjara
Gar\u00f0aprj\u00f3n Garðaprjón - handavinnusamvera á Austurvelli eru prjóna og handavinnustundir sem munu fara fram í Austurvelli þar sem öllum sem hafa áhuga gefst tækifæri til að setjast niður og prjóna, vefa, hnýta, hekla, sauma út eða bara hvað sem er tengt þráðum og sköpun með textíl.
Þannig verða skapaðar fallegar samverustundir með óvæntri samsetningu fólks á öllum aldri. Alls konar efniviður verður á staðnum hverju sinni. Einnig er velkomið að mæta með sitt eigið prjón eða aðra handavinnu og taka þátt í stundinni.
Hvert skipti er tvær klukkustundir í senn frá kl. 15-17 og verður hisst 4 sinnum í sumar: miðvikudagur 24. Júní, mánudagur 29. júní, fimmtudagur 13. ágúst og miðvikudagur 19. ágúst
Handavinna er heilandi gjörningur og sé hún iðkuð í hóp eða samneyti með öðrum eykst mátturinn og töfrarnir. Sköpun eykur vellíðan og að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt. Hugmyndin með Garðaprjón er að leyfa flæði hugans, hjartans og handanna að skapa og treysta því að útkoman verði sú sem hún á að vera. Þetta er frelsandi gjörningur sem róar taugakerfið en örvar jákvæða virkni í heilanum.
Hlökkum til að sjá ykkur á Austurvelli í sumar.
Hera, Hildigunnur & Hrafnhildur
------------------------------------------------------------------
Flóð og fjara
Hera Sigurðardóttir er eigandi hannyrðastúdíósins Flóðs & fjöru. Þar framleiðir hún vörur úr textíl ásamt því að halda alls konar handavinnunámskeið en flest eru tengd macramé hnýtingum. Hera er með menntun í mannfræði og hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands. Hún hefur víðtæka reynslu af starfi með börnum og ungmennum en frá 2002-2015 starfaði hún hjá Reykjavíkurborg sem frístundaráðgjafi og verkefnastjóri. Auk þess að hafa verið stundakennari í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands. Hera hefur mikla reynslu af því að valdefla og leiðbeina hópum og einstaklingum og ná fram sköpunarkrafti og leikgleði. Hún hefur óbilandi trú á því að handavinna í hóp hafi heilandi mátt sem er töfrum líkastur.
Textíl Barinn
Hrafnhildur og Hildigunnur eru eigendur og stofnendur Textíl Barsins sem er frumkvöðlafyrirtæki og hönnunarstúdíó sem vinnur með áður elskaðan og endurunninn textíl, auk þess að bjóða upp á námskeið fyrir textílviðgerðir og endurnotkun textíls.
Hildigunnur og Hrafnhildur hafa ólíkan bakgrunn en hafa báðar fengist við verkefnastjórn ýmissa verkefna, námskeiðahald, hönnun og sölustörf. Sameiginleg ástríða þeirra er endurnýting á textíl eftir nám og listsköpun á því sviði.
Hrafnhildur Gísladóttir er með BA í tómstunda- og félagsmálafræði frá Gautaborg og Háskóla Íslands. Verkefnastjórnun með sérhæfingu í menningu og menningartengdum viðburðum frá Gautaborg. Diplóma í Textíl frá Myndlistarskóla Reykjavíkur. Training of trainers á vegum Rannís. Hildigunnur Sigurðardóttir er með BA (HONS) í fatahönnun frá UCA í Bretlandi BSc einingar í markaðsfræði og viðburðastjórnun frá CBS í Kaupmannahöfn. Skapandi sníðagerð í Central Saint Martins í London Grafísk hönnun hjá NTV skólanum og Textíl í Myndlistaskóla Reykjavíkur.

Event Venue

Austurvöllur, Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

10cc
Tue, 23 Jun at 08:00 pm 10cc

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

The Exclusive Iceland Tour
Wed, 24 Jun at 12:00 am The Exclusive Iceland Tour

Iceland

Br\u00e1karh\u00e1t\u00ed\u00f0 2026
Thu, 25 Jun at 05:00 pm Brákarhátíð 2026

Borgarnes, Iceland

Rock Climbing Skills - Basic Course \/ Klettaklifurn\u00e1mskei\u00f0 fyrir byrjendur
Thu, 25 Jun at 05:00 pm Rock Climbing Skills - Basic Course / Klettaklifurnámskeið fyrir byrjendur

Dugguvogur, 104 Reykjavíkurborg, Ísland

Katie Melua
Thu, 25 Jun at 08:00 pm Katie Melua

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

Br\u00fa\u00f0kaup D\u00edsu og K\u00e1ra
Fri, 26 Jun at 04:00 pm Brúðkaup Dísu og Kára

Miðgarður

Back to Basics: A Trauma-Informed Breathwork Experience with Nicolai Engelbrecht
Fri, 26 Jun at 05:00 pm Back to Basics: A Trauma-Informed Breathwork Experience with Nicolai Engelbrecht

Ármúli 40 (3. hæð), 108 Reykjavík, Iceland

Dr. Gunni \u00ed 12 t\u00f3na gar\u00f0inum
Fri, 26 Jun at 05:00 pm Dr. Gunni í 12 tóna garðinum

Skólavörðustígur

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events