Advertisement
GARÐURINN / PARDÍSARFUGLARGarðurinn – uppspretta og landslag skynjunar
Íslenski dansflokkurinn kynnir Garðurinn / Paradísarvera, kvöldstund þar sem dansverk og dansmynd mætast í sameiginlegri hugleiðingu um tengsl líkama, náttúru og skynjunar.
Í dansverkinu Garðinum, eftir þá Antonio de Rosa og Mattia Russo, verður stóra sviði Borgarleikhússins umbreytt í grasivaxinn garð. Danshöfundarnir endurhugsa Garðinn sem landslag skynjunar þar sem upplifanir renna saman við alheimsvitundina. Landslag líkama og mannlegar örsögur birtast okkur og hverfa jafnóðum í flæði sem endurspeglar brothætta mennsku, tengsl og nánd. Alheimssögur í smækkaðri mynd þar sem líf er í hverri frumu og heill heimur í hverjum dropa.
Antonio de Rosa og Mattia Russo eru forsprakkar listasamssteypunnar Kor´sia (Madrid). Þeir eru þekktir fyrir sjónrænt sterk verk þar sem dansinn fær að njóta sín og er þar Garðurinn engin undantekning.
Dansmyndin Paradísarfuglar (Birds of Paradise) eftir Vikram Pradhan opnar aðra vídd sama samtals. Verkið er tilraunakennd hugleiðing um vistkynhneigð, vistnæmni og tengslanet skógarins. Innblásturinn er sóttur í Chipko-hreyfinguna á Indlandi á áttunda áratugnum, þegar konur veittu skógarhöggi friðsamlega mótspyrnu með því að faðma tré og verða sjálfar að lifandi varnargarði gegn eyðingu skóga. Vikram ímyndar sér hvernig skógurinn gæti hafa brugðist við slíkum gjörðum verndar og kærleika.
Í verkinu birtist skógurinn ekki sem óvirkt landslag heldur sem skynjandi vera, fær um að dafna í gegnum viðurkenningu, nánd og gagnkvæm tengsl. Landslagið lifnar við af tilfinningalegri gagnkvæmni sem ögrar ríkjandi hugmyndum um forsjá og stjórn. Verkið opnar mynd af samlífi þar sem maður og náttúra vaxa saman í gagnkvæmum tengslum, byggðum á umhyggju og nærveru.
Saman mynda þessi tvö verk eina heildstæða upplifun þar sem garðurinn og skógurinn verða að rýmum fyrir íhugun, næmni og tengsl. Garðurinn er boð um að stíga inn í lifandi landslag og upplifa nýjar leiðir til samveru.
Upplýsingar um Garðinn https://id.is/gardurinn/
Upplýsingar um Paradísarfugla https://id.is/paradisarfuglar/
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Listabraut 3, 103 Reykjavík, Iceland, Listabraut 3, 103 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











