Gæðastundir: Sjávarblámi | Leiðsögn sérfræðings

Wed, 11 Mar, 2026 at 02:00 pm UTC+00:00

Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjavík

Listasafn \u00cdslands \/ National Gallery of Iceland
Publisher/HostListasafn Íslands / National Gallery of Iceland
G\u00e6\u00f0astundir: Sj\u00e1varbl\u00e1mi | Lei\u00f0s\u00f6gn s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ings
Advertisement
Gæðastund í Listasafni Íslands ☕
Verið velkomin á leiðsögn sérfræðings um sýninguna Sjávarblámi.
Hvernig getur myndlistin skapað nýja sýn á heiminn, sjónarhorn sem eru ekki hugsuð út frá manninum einum heldur öllum hinum lífverunum? Á sýningunni Sjávarblámi bregða listamennirnir Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson ljósi á flókin tengsl manna og hvala.
Í rúma tvo áratugi hafa þau Bryndís og Mark verið í fararbroddi þverfaglegra rannsókna á siðferðilegum álitamálum er lúta að sambandi ólíkra tegunda; viðfangsefni sem verður sífellt brýnna í skugga aldauða tegundanna.
Þau skoða samskipti fólks og dýra með hliðsjón af rannsóknum vísinda- og fræðimanna úr ólíkum greinum og fjalla um menningarlega og samfélagslega þætti sem hafa áhrif á vistkerfi og hegðun manna og annarra skepna.
Í grafíkverkum sínum, vatnslitamyndum, skúlptúrum, hljóðinnsetningum og myndbandsverkum opna Bryndís og Mark samtal um viðkvæmt viðfangsefni sem byggir á menningarsögulegri orðræðu og táknfræðilegum vísunum.
Á sýningunni Sjávarblámi einbeita þau sér að lífi tiltekinna hvala sem þau hafa fylgst með, ýmist í gegnum frásagnir annarra eða milliliðalaust í vettvangsferðum á Skjálfanda. Þau bregða upp þversagnakenndri mynd, annars vegar af tilfinningalegum viðbrögðum mannfólksins við hvalreka og hins vegar deilum um hvalveiðar við Ísland. Á sýningunni skapast tækifæri til að endurmeta hið flókna og mótsagnakennda samband mannfólks og hvala.
--
Gæðastundir eru viðburðir sem ætlaðir eru eldri borgurum. Viðburðirnir eru samsettir úr sérsniðnum leiðsögnum og spjalli við sérfræðinga safnsins um myndlist, yfirstandandi sýningar og starfsemi.
Viðburðirnir skapa tækifæri fyrir gesti til að nálgast myndlistina og menningararf þjóðarinnar á margvíslegan hátt. Ávallt er boðið upp á kaffi á gæðastundum í Listasafni Íslands.
Aðgangseyrir á safnið gildir.
//
Quality Moments at the National Gallery of Iceland at Fríkirkjuvegur ☕
Specialist-led tour through the exhibition Seas’ Blue Yonder
How can the art of our time reimagine new, post-humanist perspectives on the relationship of humans to non-humans within the surrounding natural world? In the exhibition Sjávarblámi / The Seas’ Blue Yonder, artists Bryndís Snæbjörnsdóttir and Mark Wilson offer an integrated approach to understanding the relationship between whales and humans.
For more than two decades, Bryndís and Mark have worked at the forefront of interdisciplinary, research-based investigations into moral philosophical questions about interspecies relations –a discourse made more critical at a time of planetary crisis. Considering the work of scientists and scholars from various fields of study as part of their research methods, the artists examine human-animal interaction, illuminating how ecological, cultural, and social factors influence both human and more-than-human behavior and ecosystems. Through multiple means, here including prints, ink drawings, sculpture, mixed media, sound and video works, Snæbjörnsdóttir/Wilson offer an alternative vision, one that is grounded in discursive cultural history while drawing on iconographic references. In Seas’ Blue Yonder, they focus on the traces of individual whales they have tracked – either through narratives or directly through fieldwork undertaken in Skjálfandi Bay, near Húsavík – in juxtaposition with the paradox of whale strandings and echoes of Iceland’s recent whaling history, providing an opportunity to recalibrate a complex and conflicted relationship between humans and whales
--
The events calendar is aimed at senior citizens and is composed of specially designed tours as well as discussions with the museum´s experts on fine art, ongoing exhibitions and the work of the National Gallery of Iceland. The events create opportunities for guests to approach art and our national heritage from different perspectives.
The National Gallery´s Quality Moments events are always accompanied by coffee.
Attn. The event will be held in Icelandic
Museum entrance fees apply
Advertisement

Event Venue

Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík, Iceland, Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

Tilb\u00faningur: Papp\u00edrsr\u00f3sir | Fabrication: Paper Roses
Tue, 10 Mar at 03:30 pm Tilbúningur: Pappírsrósir | Fabrication: Paper Roses

Borgarbókasafnið Árbæ | Árbær City Library | Hraunbær 119, 110 Reykjavík

St\u00f3rar spurningar! \/ Big questions! A Game for Families
Tue, 10 Mar at 04:00 pm Stórar spurningar! / Big questions! A Game for Families

Borgarbókasafnið Grófinni - The Reykjavik City Library Grófin

Hlj\u00f3\u00f0heilun \u00ed Yoga Shala Reykjav\u00edk me\u00f0 Tinnu Mar\u00edu
Tue, 10 Mar at 06:00 pm Hljóðheilun í Yoga Shala Reykjavík með Tinnu Maríu

Skeifan 7,2nd and 3rd floor, 108 Reykjavík, Iceland

Mario Con 2026
Tue, 10 Mar at 07:00 pm Mario Con 2026

Next Level Gaming Egilshöll

Uppr\u00e1sin | Lindy Lin, Splitting Tongues og Jelena Ciric
Tue, 10 Mar at 08:00 pm Upprásin | Lindy Lin, Splitting Tongues og Jelena Ciric

Austurbakki 2, 101 Reykjavík, Iceland

Fr\u00e6\u00f0slur\u00f6\u00f0 \u00d6B\u00cd \u2013 Gervigreind \u00ed starfi f\u00e9lagasamtaka
Wed, 11 Mar at 04:00 pm Fræðsluröð ÖBÍ – Gervigreind í starfi félagasamtaka

Mannréttindahúsið

A\u00f0alfundur Hollvinasamtaka Borgarness 2026
Wed, 11 Mar at 05:00 pm Aðalfundur Hollvinasamtaka Borgarness 2026

Safnahús Borgarfjarðar

P\u00e1skabing\u00f3 H\u00f3labrekkusk\u00f3la
Wed, 11 Mar at 05:15 pm Páskabingó Hólabrekkuskóla

Suðurhólar 10, Reykjavík, Iceland

Heimili heimsmarkmi\u00f0anna: Listir, \u00ed\u00fer\u00f3ttir og t\u00f3mstundir sem forv\u00f6rn og endurh\u00e6fing
Wed, 11 Mar at 05:30 pm Heimili heimsmarkmiðanna: Listir, íþróttir og tómstundir sem forvörn og endurhæfing

Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland

Kizomba mi\u00f0vikudagur \u00ed Mj\u00f3dd
Wed, 11 Mar at 06:00 pm Kizomba miðvikudagur í Mjódd

Komið og dansið

Omnipollo + Fiskmarka\u00f0urinn
Wed, 11 Mar at 06:00 pm Omnipollo + Fiskmarkaðurinn

UPPI BAR

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events