Advertisement
Landsamtökin Spítalinn Okkar boða til málþings með titlinum: Framtíðin er stafræn- Hvernig styrkir tækni nýjan Landspítala og heilbrigðiskerfið.
Ókeypis er á viðburðinn og hvetjum við alla til að mæta.
Hægt er að skrá sig hér: https://luma.com/k5z6y48h
Dagskrá:
15:35 Opnunarorð formanns
Þorkell Sigurlaugsson, formaður Spítalans okkar.
15:45 Stafræn heilsa
Fjallað verður um tilurð og markmið Stafrænnar heilsu, helstu verkefni og framtíðarsýn.
Sigurður Þórarinsson, forstöðumaður stafrænnar heilsu hjá Heilbrigðisráðuneytinu.
16:10 Nýjasta tækni og vísindi
Stafræn framþróun í nútið og framtíð frá sjónarhóli læknis.
Arnar Þór Guðjónsson, yfirlæknir háls, nef- og eyrnalækninga Landspítala.
16:30 Staða framkvæmda NLSH - Mars 2026
Farið verður yfir stöðu framkvæmda við Hringbraut þar sem verið er að byggja nýjan meðferðarkjarna, rannsóknarhús, bílastæðahús og viðbyggingu við Læknagarð. Jafnframt verður farið yfir stöðu framkvæmda við Grensás, bráðamóttöku í Fossvogi og útboð á viðbyggingu við sjúkrahúsið á Akureyri.
Ólafur Birgisson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs NLSH.
16:50 Nýr Landspítali til framtíðar
Uppbyggingarverkefni Nýs Landspítala sem fylgja á eftir meðferðarkjarna og rannsóknahúsi. Það felur í sér m.a. nýja geðþjónustu Landspítala, uppbyggingu aðstöðu fyrir dag- og göngudeilaþjónustu, viðbætur við legurými, bætta aðstöðu til krabbameinslækninga og öldrunarlækninga auk ýmissa stoðeininga rekstrarins.
Ásgeir Margeirsson, formaður stýrihóps um þróun uppbyggingu Landspítala.
16:50-17:00 Stutt hlé og fyllt á kaffibollann
17:00 Pallborðsumræður og spurningar
17:30 Fundarslit
Fundarstjóri: Áslaug Eva Björnsdóttir, ráðgjafi og teymisþjálfi og stjórnarkona Spítalans okkar.
Málþingið verður haldið í Grósku við Bjargargötu 1. Fundarherbergið er á 1. hæð í Mýrinni í fundarherberginu Fenjamýri
Advertisement
Event Venue
Gróska hugmyndahús, Sturlugata 6, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











