Advertisement
POWER PALADIN bjóða til hlustunarveislu og forsölu á nýrri breiðskífu sinni, Beyond the Reach of Enchantment.POWER PALADIN gáfu út sína fyrstu breiðskífu, With the Magic of Wyndfyre Steel, fyrir rúmum fjórum árum og hafa síðan unnið nánast óslitið að næstu plötu.
Platan kemur út 27. mars hjá RPM – Roar Records, en þann 21. mars á Lemmy gefst einstakt tækifæri til að hlusta á plötuna í heild sinni og tryggja sér eintak í forsölu.
Atli og Ingi, söngvari og gítarleikari POWER PALADIN, munu einnig spila stutt acoustic-sett þar sem þeir flytja vel valin lög í hjartnæmum trúbadorútgáfum – ásamt fleiri skemmtiatriðum.
Kvöldið hefst kl. 20:00 á Lemmy.
Aðgangur er ókeypis, en við mælum með að tryggja sér miða á útgáfutónleika POWER PALADIN 1. apríl í Iðnó.
Miðar: https://tix.is/event/21000/power-paladin-utgafutonleikar
Advertisement
Event Venue
LEMMY, Austurstræti 20, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











