Advertisement
Eva Rós Gústavsdóttir leiðir mildan jógatíma í hádeginu á þriðjudögum. Tíminn stendur í 60 mínútur og er byggður upp með fjölbreyttum líkamsæfingum, öndunaræfingum, hugleiðslu og slökun í lokin. Um leiðbeinandann:
Eva Rós, sem er fædd árið 1989, hefur stundað hugleiðslu frá barnsaldri og kennir nú jóga í Yoga Shala, einkatímum og hjá fyrirtækjum. Hún stundar jafnframt nám í klínískri sálfræði á meistarastigi og greinir skýr tengsl milli jógafræða og sálfræði í nálgun á heilsu og vellíðan.
Í kennslu sinni tengir Eva Rós saman líkamlegar æfingar, öndun og vitund þannig að nemendur fá tækifæri til dýpri sjálfsþroska. Hún leggur áherslu á að jóga sé heildræn nálgun sem styður við andlega heilsu og persónulegan vöxt.
-
Tíminn er ókeypis en tekið er á móti frjálsum framlögum sem renna bæði til Lífspekifélagsins og leiðbeinanda. Stúkan Mörk stendur fyrir.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Ingólfsstræti 22, 101 Reykjavík, Iceland, Ingólfsstræti 22, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.










