Advertisement
Nemendur rytmískrar söngdeildar Menntaskóla í tónlist ásamt Stórsveit MÍT heiðra söngsystkynin Elly Vilhjálms og Vilhjálm Vilhjálms á glæsilegri söngsýningu. Tónleikarnir verða laugardaginn 7. og sunnudaginn 8. mars í hátíðarsalnum, Rauðagerði 27, kl. 20.00 bæði kvöldin. Tónlistarstjóri er Samúel Jón Samúelsson og um listræna stjórnun sér Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir. Á efniskrá verður úrval laga af ferli systkinanna. Öll hjartanlega velkomin og aðgangur ókeypis.
Advertisement
Event Venue
Rauðagerði 27, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











