Draumsaga dags og nætur í Dölunum

Fri, 08 May, 2026 at 04:00 pm to Sun, 10 May, 2026 at 12:00 pm UTC+00:00

Nýp | Patreksfjörður

Draumsaga
Publisher/HostDraumsaga
Draumsaga dags og n\u00e6tur \u00ed D\u00f6lunum
Advertisement
Draumsöguhelgi – Nýp á Skarðsströnd helgina 8. – 10. maí 2026
Leiðbeinendur - Elísabet Lorange og Valgerður H. Bjarnadóttir
Langar þig að kynnast draumunum þínum betur og læra að nýta þá sem brú milli svefns og vöku, milli dul- og meðvitundar?
Okkur dreymir öll og draumarnir geta verið bæði dásamlegir og ógnvekjandi, hversdagslegir og ævintýralegir. En við munum þá ekki alltaf og fæst okkar hafa lært að nýta þá sér til gleði og gagns.
Þetta námskeið felst í því að byggja upp og dýpka sambandið milli draum- og vökuvitundar, til aukinnar sjálfsþekkingar og lífsfyllingar. Það gerum við með fræðslu, umræðu, skrifum, íhugun, tjáningu og sköpun og þó ekki síst með því að vinna saman með drauma einstaklinganna í hópnum. Lögð er áhersla á að hvert og eitt öðlist getu til að nýta eigin drauma sér til gagns og gleði í hinu daglega lífi og að sterkari tengsl skapist á milli ólíkra vitundarstiga.
Nánari upplýsingar um verð og tilhögun á [email protected]
Leiðbeinendur
Elísabet Lorange er kennari og listmeðferðarfræðingur að mennt. Hún hefur unnið sem sjálfstætt starfandi listmeðferðarfræðingur sl. 20 ár. Hún hefur komið að meðferðarvinnu með hópum og einstaklingum á öllum aldri. Undanfarin ár hefur hún sérhæft sig í vinnu með fullorðnum og fósturfjölskyldum. Elísabet hefur í tugi ára unnið með sína eigin drauma sem og drauma þeirra sem það vilja og þurfa í listmeðferðinni.

Valgerður H. Bjarnadóttir er félagsráðgjafi, með BA í heildrænum fræðum með áherslu á draumavinnu og MA í femínískri trúarheimspeki og menningarsögu. Hún hefur starfað að málefnum kvenna, fræðslu og ráðgjöf í áratugi og hefur að baki fjölþætta reynslu af félagsmálum, stjórnmálum, heilbrigðismálum, menningar- og menntamálum og jafnréttismálum. Hún hefur nýtt og skoðað draumana sína frá barnsaldri og nýtir draumvitundina markvisst í öllu sínu starfi.
Advertisement

Event Venue

Nýp, Nýpur, Nýpur, 371 Dalabyggð, Ísland, Patreksfjörður, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Patreksfjörður

Fjallask\u00ed\u00f0afer\u00f0 \u00e1 Sn\u00e6fellsj\u00f6kul
Thu, 14 May at 10:00 am Fjallaskíðaferð á Snæfellsjökul

Snæfellsjökull

Alter Bridge - What Lies Within Tour
Sun, 24 May at 09:00 pm Alter Bridge - What Lies Within Tour

Seminole Hard Rock Hotel & Casino Tampa

Patreksfjörður is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Patreksfjörður Events