Draumsýn: Jóna G. Kolbrúnardóttir og Ástríður Alda

Thu, 03 Apr, 2025 at 08:00 pm UTC+00:00

Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjavík

Hannesarholt
Publisher/HostHannesarholt
Draums\u00fdn: J\u00f3na G. Kolbr\u00fanard\u00f3ttir og \u00c1str\u00ed\u00f0ur Alda
Advertisement
Jóna G. Kolbrúnardóttir sópransöngkona og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari flytja ljóðatónlist eftir Clöru Schumann (1819-1896) og Franz Schubert (1797-1828) á tónleikum í
Hannesarholti. Verkefnavalið samanstendur af völdum ljóðum eftir F. Schubert og flokkunum Opus 12 og 13 eftir C. Schumann. Í ljóðunum er náttúran í fyrirrúmi og endurspeglar ólíkar
birtingarmyndir ástarinnar, margslungnar tilfinningar og drauma mannsins.
F. Schubert lést aðeins 31 árs gamall. Þrátt fyrir stutta ævi var Schubert ótrúlega afkastamikill. Hann samdi yfir 600 söngljóð (Lieder) og hafði áhrif á fjölda tónskálda, þar á meðal Clöru Schumann, Robert Schumann, Johannes Brahms, Richard Strauss og fleiri. Schubert er talinn brautryðjandi þýska söngljóðsins (Lied). Hann bjó yfir einstökum hæfileikum til að tjá hinar dýpstu tilfinningar ljóðanna í fallegum og flæðandi laglínum. Í söngljóðum Schuberts gildir jafnræði milli söngraddarinnar og tóna píanósins, sem dýpka skilning okkar á ljóðinu í sameiningu.
C. Schumann skilur einnig eftir sig fjöldann allan af tónsmíðum, þrátt fyrir að hafa nánast hætt að semja eftir að hún giftist tónskáldinu Robert Schumann. En líkt og söngljóð Schuberts þá
fléttar Schumann píanóleikinn og söngröddina einstaklega vel saman. Línurnar mynda eina heild og tilfinningar ljóðsins komast fullkomnlega til skila. Hún var eftirsóttur og virtúósískur
píanóleikari í sinni tíð, og greina má snilli hennar í píanóparti söngljóðanna.
Franz Schubert
Seligkeit - L. H. Chr. Hölty
Clara Schumann - Op. 13
1. Ich stand in dunklen Träumen - Heinrich Heine
2. Sie liebten sich beide - Heinrich Heine
3. Die Liebe sass als Nachtigall - Emanuel Geibel
4. Der Mond kommt still gegangen - Emanuel Geibel
5. Ich hab’ in deinem Auge - Friedrich Rückert
6. Die stille Lotusblume - Emanuel Geibel

Franz Schubert
Frühlingsglaube - L. Uhland
Im Freien - J. G. Seidl
Fischerweise - Franz v. Schlechta
Im Abendrot - Carl Lappe
Sprache der Liebe - Aug. Wilh. Schlegel
Gretchen am Spinnrade úr “Faust” - Goethe

Clara Schumann - Op. 12
1. Er ist gekommen in Sturm und Regen - F. Rückert
2. Liebst du um Schönheit - F. Rückert
3. Warum willst du and're fragen - F. Rückert
Franz Schubert
Nacht und Träume - Matthäus v. Collin
Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland, Grundarstígur 10, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland

Tickets

Sharing is Caring:

More Events in Reykjavík

F\u00e9lagsleg samskipti fullor\u00f0inna me\u00f0 ADHD
Wed, 02 Apr, 2025 at 08:00 pm Félagsleg samskipti fullorðinna með ADHD

Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík, Iceland

Samflot \u00ed \u00c1rb\u00e6jarlaug
Wed, 02 Apr, 2025 at 08:30 pm Samflot í Árbæjarlaug

Fylkisvegur 9, 110 Reykjavík, Iceland

Tilb\u00faningur | P\u00e1skaf\u00f6ndur | Endurvinnsla \u00e1 g\u00f6mlum b\u00f3kum
Thu, 03 Apr, 2025 at 03:30 pm Tilbúningur | Páskaföndur | Endurvinnsla á gömlum bókum

Borgarbókasafnið Úlfarsárdal

Samsteypa | H\u00f6nnunarMars 2025
Thu, 03 Apr, 2025 at 06:00 pm Samsteypa | HönnunarMars 2025

Kolagata — Hafnartorg, 101 Reykjavík, Iceland

Gj\u00f6ri\u00f0 svo vel a\u00f0 l\u00edta inn - Rammager\u00f0in \u00e1 H\u00f6nnunarmars
Thu, 03 Apr, 2025 at 06:00 pm Gjörið svo vel að líta inn - Rammagerðin á Hönnunarmars

Laugavegur 31, 101 Reykjavíkurborg, Ísland

\u00d3peruveisla me\u00f0 \u00d3lafi Kjartani
Thu, 03 Apr, 2025 at 07:30 pm Óperuveisla með Ólafi Kjartani

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2

Jazz \u00ed Dj\u00fapinu \/\/ R\u00f6ggi
Thu, 03 Apr, 2025 at 08:30 pm Jazz í Djúpinu // Röggi

Veitingahúsið Hornið

H\u00f6nnunarMars \u00ed Elli\u00f0a\u00e1rst\u00f6\u00f0 - Uppspretta
Fri, 04 Apr, 2025 at 11:00 am HönnunarMars í Elliðaárstöð - Uppspretta

Rafstöðvarvegur 6, 110 Reykjavík, Iceland

Keppinautur 2025
Fri, 04 Apr, 2025 at 04:00 pm Keppinautur 2025

Reykjavik Iceland

P\u00f3st-J\u00f3n sn\u00fdr aftur
Fri, 04 Apr, 2025 at 08:00 pm Póst-Jón snýr aftur

Þjóðleikhúsið

Jack Daniels kynnir: Britpop t\u00f3nleikar \u00ed I\u00f0n\u00f3!
Fri, 04 Apr, 2025 at 08:00 pm Jack Daniels kynnir: Britpop tónleikar í Iðnó!

Vonarstræti 3, 101 Reykjavík, Iceland

Mamma Mia! Syngjum saman! - F\u00f6studagspart\u00eds\u00fdning!
Fri, 04 Apr, 2025 at 09:00 pm Mamma Mia! Syngjum saman! - Föstudagspartísýning!

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events