Advertisement
Brúðubílinn frumsýnir glænýtt leikverk, Afmælisveisluna í leikstjórn Aldísar Davíðs í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum laugardaginn 16. maí kl. 14. Lilli api, Dúskur og fleiri skrautlegar persónur munu baka drulluköku fyrir afmælisbarnið.
Verkið er uppfullt af töfrum, glimmeri og fjörugum lögum. Jafnvel munu sokkapar og sápa bresta í söng!
Þessi sýning er fyrir alla aldurshópa en gestir eru hvattir til að mæta snemma og njóta þess að leika sér í leiktækjunum og skoða dýrin áður en sýningin hefst.
Leikarar eru:
Hörður Bent Steffensen
Hugrún Ylfa
Ísak Óli Borgarsson
Gestum býðst til að taka myndir með brúðunum og Lilla apa eftir sýninguna.
Einnig verða litabækur, litir, bolir og peysur í öllum stærðum til sölu!
Hlökkum til að sjá ykkur öll!
Advertisement
Event Venue
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn/Reykjavik Family Park and Zoo, Laugardalur,Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.










