Advertisement
Hjörleifur Sveinbjörnsson þýðandi og stjórnarmaður í Lífgrösum stendur fyrir borgargöngunni “Húsin bakvið húsin” miðvikudaginn 10. júní kl 17:00. ÞESSI GANGA VAR MJÖG VINSÆL Í FYRRA OG VAR UPPSELD NÁNAST UM LEIÐ. Við þræðum bakgötur, stíga, undirgöng og skuggasund til að fylla upp í myndina af borginni okkar. Byrjum við styttuna af Leifi heppna fyrir framan Hallgrímskirkju og endum vestur í bæ. Allir geta tekið þátt og þetta verður ekki erfið ganga.Með þátttöku í borgargöngunni gefst frekara tækifæri til að styrkja starf Lífgrasa meðal snauðustu meðsystra okkar. Þú greiðir 4.500 krónur sem margfaldast á leið sinni til flóttamannabúða í Úganda. Gríptu tækifærið til að fá þér heilsusamlegan göngutúr, styrkja gott málefni og sjá eilítið nýja hlið á borginni okkar.
Gangan kostar 4.500 kr (eða meira ef þú getur) og þú skráir þig með því að senda tölvupóst á [email protected] og leggur inn á reikning Lífgrasa 537-26-12836 og kt: 640723-0410. EKKI ER HÆGT AÐ TAKA ÞÁTT NEMA SKRÁ SIG MEÐ TÖLVUPÓSTI OG GREIÐA. TAKMARKAÐUR ÞÁTTTÖKUFJÖLDI.
Gangan hefst stundvíslega kl 17:00 miðvikudaginn 10. júní við styttuna af Leifi heppna við Hallgrímskirkju.
Advertisement
Event Venue
Hallgrímskirkja, Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.






