Advertisement
Sveitarfélagið Árborg boðar til funda í hverfisráðum sveitarfélagsins í samræmi við nýjar samþykktir fyrir hverfisráð, samþykktar á fundi bæjarstjórnar sem haldinn var 4. febrúar 2026. Á fundunum verður farið yfir hlutverk og starfshætti hverfisráða og kosið í stjórn hvers ráðs.Boðað er til fundar til stofnunar hverfisráða sem hér segir:
Hverfisráð Stokkseyrar
Þriðjudagurinn 7. apríl, kl. 19:30 í Barnaskólanum á Stokkseyri
Hverfisráð Eyrarbakka
Miðvikudagurinn 8. apríl, kl. 19:30 á Stað á Eyrarbakka.
Hverfisráð Sandvíkurhrepps
Þriðjudagurinn 14. apríl, kl. 19:30 í Stekkjarskóla
Hlutverk hverfisráða er að stuðla að virku samráði sveitarfélagsins og íbúa, efla íbúalýðræði og fjalla um málefni er varða hvert hverfi sérstaklega.
Bæjarstjórn Árborgar bindur vonir við gott og farsælt samstarf við ný hverfisráð og til að stuðla að því verður tveimur bæjarfulltrúum falið að starfa með hverju ráði samkvæmt samþykktum
Kjör til stjórna hverfisráða
Íbúar hvers svæðis eru hvattir til að gefa kost á sér til setu í stjórn viðkomandi hverfisráðs. Hægt er að bjóða sig fram á fundinum sjálfum, eða fyrir fundinn, með því að senda tölvupóst með upplýsingum um sig á: [email protected] merkt „Framboð í Hverfisráð“
Nánari upplýsingar
Samþykktir fyrir hverfisráð Árborgar má finna á heimasíðu sveitarfélagsins:
www.arborg.is/samthykktir
Advertisement
Event Venue
Austurvegi 2, 800 Selfoss, Iceland, Austurvegur 2, 800 Sveitarfélagið Árborg, Ísland, Selfoss, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.






