Advertisement
Dansflæði & orkustöðvar, vakning í líkamanumFinnur þú að eitthvað innra með þér vill hreyfast, losna og opnast
Þessi tími er ekki bara dans. Þetta er ferðalag inn í líkamann.
Við dönsum okkur í gegnum orkustöðvarnar, opnum þær, hreinsum og virkjum með tónlist, öndun og frjálsri hreyfingu.
Hér nærðu að
• sleppa tökum á því sem situr fast
• hreyfa orku og tilfinningar
• opna fyrir kraftinn sem býr innra með þér
• finna gleðina í líkamanum aftur
Þú þarft ekki að kunna að dansa. Þú þarft bara að mæta. Þetta er rými þar sem þú mátt vera nákvæmlega eins og þú ert, lifandi og frjáls. Við endum á djúpri slökun þar sem allt sem þú opnar fær að setjast í líkamann og næra hann.
Þetta er fyrir þig ef þú ert tilbúin að
• stíga út úr höfðinu á þér og inn í líkamann
• taka pláss og finna kraftinn sem býr innra með þér
• tengjast sjálfri þér á nýjan hátt
Takmarkað pláss og því er skráning nauðsynleg á [email protected]
Þessi tími hefur djúp áhrif á hug, líkama og sál.
Komdu með í frábært ferðalag og leyfðu líkamanum að leiða þig inn í töfraheima orkustöðvanna. Frábær byrjun á góðri helgi.
Leiðbeinandi er Valgerður Jóndís Guðjónsdóttir
Við byrjum föstudaginn 10 apríl kl 18:30 og dönsum og slökum í 90 mínútur.
Verð pr. tíma er 4500.-
Advertisement
Event Venue
Austurmörk 7 , 810, Austurmörk 7, 810 Hveragerðisbær, Ísland, Selfoss, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.





