Advertisement
Dansverkstæðið býður nú í fyrsta sinn upp á barna- og fjölskyldudagskrá sem hefur það markmið að auka aðgengi barna og fjölskyldna að danstengdum viðburðum og styðja við og veita listafólki vettvang og tækifæri til þess að þróa verkefni fyrir unga áhorfendur.Barna- og fjölskyldudagskrá Dansverkstæðisins samanstendur af mánaðarlegum viðburðum haustið 2024 til vors 2025. Dagskráin er fjölbreytt, aðgengileg öllum börnum og ÓKEYPIS!
Hér fyrir neðan má finna yfirlit yfir viðburði vorsins, sumir viðburðir krefjast fyrirfram skráningar sökum takmarkaðs pláss. Búinn verður til sér facebook viðburður fyrir hvern viðburð með nánari upplýsingum.
Allir viðburðir munu eiga sér stað í sal 1 á Dansverkstæðinu, Hjarðarhaga 47, 107 Reykjavík.
Í anda afslappaðs sýningarhalds verður salur 2 gerður aðgengilegur fyrir þau börn sem vilja kúpla sig út í rólegu umhverfi. Salurinn verður útbúinn koddum og dýnum þar sem hægt verður að slaka á án nokkurs áreitis.
Barna- og fjölskyldudagskrá Dansverkstæðisins er í samstarfi við Assitej á Íslandi og Reykjavík Dance Festival og styrkt af Barnamenningarsjóði.
*-*-*-*-*-*
Dagskrá - Vor 2025:
19. janúar - Fjölskyldudansspuni með Völu Rúnarsdóttur kl. 11:00 - 12:00
16. febrúar - Baby Rave með Dj Ívari Pétri í samstarfi við Reykjavík Dance Festival kl. 11:00 - 12:00 (börn á öllum aldri) *engin skráning
16. mars - Danssýningin Vera og vatnið eftir Tinnu Grétarsdóttur kl. 11.00 - 11.45 (börn á leikskólaaldri) *skráning
13. apríl - Fjölskyldupönk með Gígju Jónsdóttur kl. 11:00 - 12:30 *skráning
11. maí - Vinnustofusýning (kynnt síðar)
------------------------------------------------------------------
ENGLISH
Dansverkstæðið hosts its first Child and Family Program that aims to increase children's and families' access to dance-related events and to support and provide artists with a platform and opportunity to develop projects for young audiences.
The Child and Family Program of Dansverkstæðið consists of monthly events in autumn 2024 - spring 2025. The program is very diverse, accessible to all children and FREE of charge!
Below you can find an overview of the spring events, some events require registration due to limited space. A separate facebook event will be create for each event with detailed information.
All events will take place in studio 1 at Dansverkstæðið, Hjarðarhagi 47, 107 Reykjavík.
In the spirit of a relaxed exhibition, studio 3 will be made available to children who want to unwind in a quiet environment. The studio will be equipped with pillows and mattresses where you can relax without any stimuli.
The children's and family program of Dansverkstæðið is in collaboration with Assitej in Iceland and Reykjavík Dance Festival and is funded by the Children's Culture Fund.
*-*-*-*-*-*
Program - Spring 2025:
19th of January - Family Dance Improvisation with Vala Rúnarsdóttir, 11:00 - 12:00
16th of February - Baby Rave with Dj Ívar Pétur in collaboration with Reykjavík Dance Festival, 11:00 - 12:00 (all ages) *no registration
16th of March - The dance performance Vera and the Water by Tinna Grétarsdóttir, 11:00 - 11:45 (1 - 5 years) *registration
13th of April - Family Punk with Gígja Jónsdóttir, 11:00 - 12:30 (8 years +)*registration
11th of May - Residency Sharing (To be anounched)
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Hjarðarhagi 47, Hjarðarhagi 47, 107 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland