Advertisement
„While in Battle I’m Free, Never Free to Rest“ fer aftur á svið!Eftir frábærar viðtökur á Listahátíð í Reykjavík síðasta sumar, snýr verkið “While in Battle I’m Free, Never Free to Rest“ aftur á svið.
Í þessu kraftmikla verki danshöfundarins Hoomans Sharifi mætast tveir ólíkir hópar með ólíkan bakgrunn — street-dansarar og samtíma- dansarar. Hvor hópur á sér sinn einstaka ryþma og tungumál. Stefnumót þeirra einkennist af forvitni og sameiginlegri ástríðu fyrir hreyfingu. Þau nálgast hvert annað af varfærni og yfirstíga landamæri með líkamstjáningu sinni. Þannig skapast rými þar sem einstaklingnum er fagnað og fjölbreytileikanum er tekið opnum örmum. Reynslan er ný af nálinni fyrir alla dansarana, þenur út mörk og víkkar sjóndeildarhringinn.
Tanbur-tónlist Arash Moradi er sameiningarafl í þessum menningarlega samruna, bæði fyrir dansarana og áhorfendur, og lifandi tónlistarflutningur hans fyllir andrúmsloftið af ókunnugum en hrífandi laglínum.
Við hlökkum til að sjá þig á Nýja sviði Borgarleikhússins í febrúar
Bestu kveðjur
Íslenski dansflokkurinn
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Borgarleikhúsið, Listabraut 3, 103 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland
Tickets