Advertisement
Stjórn boðar til aðalfundar Félags fósturforeldra árið 2026.Að baki er sögulegt ár hjá félaginu. Félagið rak skrifstofu sem veitti félagsfólki stuðning og þjónustu, safnaði fjölda fósturforeldra ásamt helstu hagaðilum innan fósturkerfisins á málþing, hélt nokkur námskeið, hélt fjölskylduviðburði, efldi ímyndarstarf, fjölgaði félagsfólki og náði árangri í hagsmunabaráttu fyrir fósturforeldra á Íslandi. Félaginu eru ýmsir vegir færir og er félagsfólk er því hvatt til að þátt í fundinum til að hafa áhrif á frekara starf og það sem framundan er hjá félaginu
Fundurinn verður haldinn í persónu og á Zoom og tengill verður sendur skráðu félagsfólki í tölvupóst og gerður aðgengilegur í Facebook hópi fósturforeldra fyrir fund.
Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar
3. Reikningar félagsins lagði fram til samþykktar
4. Lagabreytingar
5. Ákvörðun félagsgjalda
6. Kosningar
Meðstjórnanda til tveggja ára
Varamanns til tveggja ára
Skoðunarmaður reikninga
7. Önnur mál
Advertisement
Event Venue
Mannréttindahúsið, Sigtún 42, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.







