Advertisement
ADHD - forvitni og fikt ávanaefna hjá ungmennumFræðslufundur um forvarnarmiðuð uppeldisráð fyrir aðstandendur barna og ungmenna með ADHD.
Ef þú ert aðstandandi barns með ADHD, áfallasögu eða langvarandi andlega erfiðleika þá hefur uppeldi þess barns mögulega verið áskorun. Þegar unglingsárin færast svo yfir eru þessi börn í margfaldri áhættu fyrir því að leiðast út í hegðunarvanda, áhættuhegðun og neyslu ávanaefna, sem getur haft óafturkræf og alvarleg áhrif á lífsgæði þeirra sem og fjölskyldur þeirra. Að gera rétt í uppeldi barns í þessum áhættuhóp er þolraun og langvarandi verkefni sem margir þurfa að koma að en það er jafnframt mikilvægasta forvörnin. Að standa frammi fyrir áskorunum sem þessum í uppeldi er gríðarlega erfitt hlutverk og afar vanþakklátt starf. Hvar á að byrja, hvað á að gera, hver getur hjálpað og hvernig held ég þetta út?
Á þessum fræðslufundi verður fjallað um árangursrík úrræði fyrir aðstandendur barna í áhættuhópi. Sigrún Birna er sálfræðingur hjá skrifstofu menntasviðs Reykjanesbæjar, hún er með doktorsgráðu í félagssálfræði og tveggja barna móðir. Hún mun hér blanda saman fræðum, hagnýtum forvarnarráðum í uppeldi og fer yfir ýmsan fróðleik um stuðningsúrræði.
Það er afar mikil upplýsingaóreiða í þessum málaflokki og er markmiðið með þessu erindi að skýra línur, valdefla aðstandendur og efla von.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík, Iceland, Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland