Advertisement
Sunnudagskvöldið 8. mars kl. 20-21 ræðum við um óhlutbundna myndlist á Torginu í Neskirkju. Tilefnið er sýning Styrmis Arnar Guðmundssonar, Ókominn slóði. Þar birtir listamaðurinn flennistórar teikningar af gáttum að veraldlegum víddum, áþreifanlega og sjónræna upplifun, vitnisburður um takmarkalausa möguleika mannlegs ímyndunarafls.
Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson segir frá efni bókar sinnar Abstraktmálverkið – Helgimynd íslenskrar menningar á 20. öld, en hún hlaut tilnefningu til verðlauna Hagþenkis árið 2025. Í umsögn um ritið segir: „Frumleg listfræðileg nálgun um tengsl abstraktlistar við framfaratrú og veraldarhyggju með hliðsjón af hugmyndafræðilegum átökum í víðara samhengi samfélags og trúar.“
Styrmir Örn Guðmundsson myndlistarmaður býður í listamannaspjall um sýningu sína ‘Ókominn slóða’. Þar sýnir Styrmir flennistórar teikningar af gáttum að veraldlegum víddum, áþreifanleg og sjónræn upplifun, vitnisburður um takmarkalausa möguleika mannlegs ímyndunarafls. Í teikningum sínum reynir Styrmir ekki að teikna umhverfið eins og hann sér það heldur fer á hugarflug um það svo úr verður umhverfi eins og úr öðrum heimi. Svartar, litríkar og andlegar myndirnar umlykja áhorfandann svo það er líkt og hann geti gengið inn í myndirnar. Þegar pensilstrokur og bleklínur Styrmis dansa um pappírinn enduróma þær hrynjanda tilverunnar sjálfrar – síbreytilegar, ógnvænlegar og hrífandi.
Umsjón hefur Skúli S. Ólafsson
Advertisement
Event Venue
Neskirkja, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











