Advertisement
Aðalfundur Trans Íslands verður haldinn kl. 17:30 þriðjudaginn 4. mars næstkomandi í húsnæði Samtakanna '78 að Suðurgötu 3.Atkvæðisrétt og kjörgengi hefur skráð félagsfólk sem hefur borgað félagsgjöld ársins 2025. Þau sem ekki eru skráð í félagatalið geta skráð sig með eftirfarandi formi:
https://forms.gle/DDKNHMQvpcwk4D9p7
Posi verður á staðnum fyrir þau sem eiga eftir að greiða félagsgjöld, en við mælum með að vera búin að því fyrir fundinn með því að leggja inn á reikning Trans Íslands með millifærslu:
reikn. 0133-15-006932
kt. 491107-0650
Einnig er hægt að leggja inn á félagið í gegnum Aur með notandanafninu @transisland eða númerinu 123 791 0078.
Almennt félagsgjald er 2.000 kr. eða 500 kr. fyrir nema, öryrkja, eða önnur sem hafa ekki efni á að borga almennt félagsgjald.
Dagskrá:
1. Fundur settur.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Lögmæti aðalfundar staðfest.
4. Skýrsla stjórnar.
5. Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram.
6. Umræða og atkvæðagreiðsla um skýrslu stjórnar og ársreikninga.
7. Lagabreytingar.
8. Kosning forseta.
9. Kosning fjögurra stjórnarmeðlima.
10. Kosning eins skoðunaraðila reikninga.
11. Samþykkt félagsgjalds.
12. Önnur mál.
Fólki sem hefur áhuga á að bjóða sig fram í stjórn er bent á að gera það með þessu formi:
https://forms.gle/5g1N6dZDPrLLUD676
Einnig verður hægt að bjóða sig fram á fundinum sjálfum.
Tillögur að lagabreytingum þurfa að berast stjórn með minnst tveggja daga fyrirvara í tölvupósti á [email protected]. Þær tillögur sem kosið verður um verða birtar félagsfólki minnst sólarhring fyrir aðalfund. Núgildandi lög eru aðgengileg á vef félagsins:
https://transisland.is/skjol/
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Samtökin '78, Suðurgata 3,Reykjavík, Iceland