Advertisement
IS
Við fögnum þjóðhátíðardegi Sama með sýningu á hinni vinsælu heimildarmynd „Historjá – Stygn för Sápmi“ eða Historjá – þræðir fyrir Sápmi.
Föstudaginn 6. febrúar
Kl: 17:00
Aðgangur ókeypis
Þjóðhátíðardagur Sama er haldinn hátíðlegur 6. febrúar, daginn sem fyrsta Samaþingið var haldið árið 1917 í Þrándheimi í Noregi.
Myndin fjallar um baráttu Sama og er sett fram á ljóðrænan og átakanlegan hátt af listakonunni Brittu Marakatt-Labba. Hún er bæði falleg lýsing á samískum þjóðsögum og heimsmynd og á sama tíma áhrifarík áminning um þá tilvistarógn sem loftslagsbreytingar fela í sér fyrir samíska menningu.
1 klst. 28 mín.
Framleiðsluár: 2022
Leikstjóri: Thomas Jackson
Þátttakendur: Britta Marakatt-Labba, Carl Johan de Geer og Marianne Lindberg de Geer
Britta Marakatt-Labba er ein af listamönnunum í sýningunni Ripples: Shifting Realities in the Arctic, sem opnar laugardaginn 7. febrúar. Nánari upplýsingar um sýninguna eru aðgengilegar hér: https://nordichouse.is/vidburdur/syningaropnun-ripples-shifting-realities-in-the-arctic/
--
EN
We celebrate the Sami National Day with a screening of the acclaimed documentary film “Historjá – Stitches for Sápmi”
Friday 6 February
17:00
Free admission
The Sami National Day is celebrated on 6 February, the day the first Sami Congress was held in 1917 in Trondheim, Norway.
The film shows the Sami struggle, poetically and poignantly portrayed by artist Britta Marakatt-Labba. A dazzlingly beautiful portrayal of Sami mythology and worldview, but also of the existential threat that climate change poses to Sami culture.
1 hr 28 min
Production year: 2022
Director: Thomas Jackson
Cast: Britta Marakatt-Labba, Carl Johan de Geer and Marianne Lindberg de Geer
Britta Marakatt-Labba is one of the artists in the exhibition Ripples: Shifting Realities in the Arctic, which premieres on Saturday, February 7. More information about the exhibition is available here: https://nordichouse.is/en/event/exhibition-opening-ripples-shifting-realities-in-the-arctic/
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Sæmundargata 11, 101 Reykjavík, Iceland, Sæmundargata 11, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.










