Advertisement
HyperOrgel Tónleikar í Hallgrímskirkju í beinu framhaldi af opnun Vetrarhátíðar í Reykjavík 2026
~ Fimmtudagur 5.feb kl 19:30-20:45
Gagnvirk tónverk með tölvutengdum hljóðfærum.
Tómas Manoury - nýtt verk
Steinunn Harðardóttir - nýtt verk
Jesper Pedersen - nýtt verk
Áki Ásgeirsson - nýtt verk
~ Föstudagur 6.feb kl 15:00 Open Lab í Veröld
- Hús Vigdísar
Intelligent Instruments Lab: Umræður með tónskáldum, sýnd dæmi um tölvustýrð orgelverk.
~ Laugardagur 7.feb - Dagskrá í Hallgrímskirkju:
~ kl 12:00-12:300 Hádegistónleikar / Matinée
Örlygur Steinar Arnalds - r lego, 3m 52s
Yulia Vasileva - nýtt verk
Ronja Jóhansdóttir - nýtt verk
Gunnar Andreas Kristinsson - nýtt verk
Guðmundur Vignir Karlsson - nýtt verk
Arnljótur Sigurðsson - nýtt verk
~ kl 13:00 Tónverk á heila tímanum: Dettifoss
~ kl 13:20-13:50 Orgeltæknitónsmíðaspjall í Norðursal Hallgrímskirkju: Áki Ásgeirsson leiðir umræður.
~ kl 14:00 Tónverk á heila tímanum: Victor Shepardson and Julie Zhu
~ kl 16:00 Tónverk á heila tímanum: Svartþoka
~ kl 17:00 Tónverk á heila tímanum: Sveinn Ingi Reynisson
========================================
Klais orgelið í Hallgrímskirkju var vígt árið 1992. Orgelið hefur 4 hljómborð og fótspil, 72 raddir og 5275 pípur. Orgelið er 15 metra hátt, vegur um 25 tonn og stærstu pípurnar eru um 10 metra háar.
Árið 2013 var MIDI tengingu bætt við við spilaborð orgelsins sem er staðsett á kirkjugólfinu. Þá opnaðist sá möguleiki að tengja tölvu við orgelið og stjórna því með tölvu eða öðrum stjórntækjum. MIDI er einfaldur samskiptastaðall fyrir tónlist og hefur frá 1983 aðallega verið notaður til að tengja saman hljómborð og hljóðgervla.
Tölvustýrð hljóðfæri lúta öðrum lögmálum en hljóðfæri sem leikið er á af mennskum flytjendum. Ákvarðanir tónskáldsins um hraða, tímasetningar og áslátt eru leiknar af hljóðfærinu án málamiðlana. Þannig er hægt að láta hljóðfærið leika af ofurnákvæmni en einnig er möguleiki að láta tölvuna leika ónákvæmt eftir fyrirfram gefnum forsendum. Gagnvirk orgel tónlist í samhengi við lifandi flutning hentar tölvustýrðu orgeli vel, auk flókinnar algrímskrar tónlistar og tónlistar sem unnin er með vélanámi. Tölvustýring orgelsins opnar sumsagt á nýja vídd í flutningi, túlkun, hljóðáferð og upplifun áheyrenda.
HyperOrgel er verkefni Intelligent Instruments Lab, þverfaglegrar rannsóknarstofu innan Háskóla Íslands sem skoðar hlutverk gervigreindar í nýjum hljóðfærum og tækni almennt. Í Hallgrímskirkju verða kvöldtónleikar, hádegistónleikar, fyrirlestur og sömuleiðis tölvustýrð tónverk á opnunartíma kirkjunnar.
Áki Ásgeirsson, listræn stjórnun.
Sveinn Ingi Reynisson, tæknileg umsjón.
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR
--ENGLISH--
HyperOrgel
Technology and music meet and give the audience a new perspective on the Klais organ in Hallgrímskirkja.
The concerts begins following the opening ceremony of the Reykjavík Winter Lights Festival at Hallgrímskirkja at 19:30
Free admission and everyone is welcome!
Hallgrímskirkja – Your place in Reykjavík
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík, Iceland, Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.










