Advertisement
Komið með í fróðlega og ævintýralega göngu um heim töfrandi trjáa á Safnanótt. Björk Þorleifsdóttir, verkefnastjóri fræðslu og miðlunar hjá Grasagarðinum, mun fjalla um galdra, goðsagnir og menningarhefðir sem tengjast ákveðnum trjátegundum sem finna má í garðinum. Í göngunni, sem hentar öllum aldurshópum, koma ást, undirheimar, ódauðleiki, Öskubuska og máttugir töfrasprotar við sögu.
Vinsamlegast takið með ykkur vasaljós eða notist við símavasaljós og munið að klæða ykkur eftir veðri því fræðslan fer fram utandyra.
Gangan er hluti af fræðsludagskrá Grasagarðsins og hefst við aðalinngang safnsins.
Athugið að hún verður á íslensku.
Þátttaka er ókeypis og öll velkomin!
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Grasagarður Reykjavíkur, Múlavegur 3, 104 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











