Advertisement
Á þessari tveggja daga ráðstefnu verður gestum boðið að kynna sér önnur sjónarmið en þau sem hafa verið ríkjandi í geðheilbrigðismálum.Fyrirlesarar eru aðilar sem hafa beitt sér á alþjóðavettvangi fyrir breyttri nálgun í geðheilbrigðismálum. Auk þeirra mun fólk með reynslu af tilfinningalegri vanlíðan og/eða fíkn leiða vinnustofur.
Við vonumst til þess að fólk, sem lætur sig geðheilbrigðismál varða, mæti og deili hugmyndum og taki þátt í nýsköpun og framþróun í málaflokknum. Við bjóðum leikmenn jafnt sem fagfólk velkomið.
Upplýsingar um viðburð:
Fimmtudagur 15. maí: Vinnustofur frá 9:00 til 16:00
Föstudagur 16. maí: Ráðstefna frá 9:00 til 16:00
Gestafyrirlesarar sem hafa verið tilkynntir:
Will Hall, Caroline Mazel-Calton og Trevor Eyles
Verð í forsölu sem gildir til 10. janúar:
Verð fyrir báða daga: 23.900 kr. – 6.000 kr. fyrir námsmenn og öryrkja
Verð fyrir föstudag: 12.900 kr. – 4.000 kr. fyrir námsmenn og öryrkja
Miðasala fer fram á tix.is:
https://tix.is/event/18750/social-change
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Hilton Reykjavík Nordica (Reykjavík, Iceland), Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland