Á þessu 6 vikna námskeiði fyrir karla sameinum við náttúruna, einföld verkefni og samtal til að skapa rými fyrir ró, styrk og aukið jafnvægi í daglegu lífi.
🌲 Fyrir karla sem vilja stíga út úr hraða dagsins, tengjast náttúrunni og taka þátt í verkefnum sem efla bæði líkama, hug og samfélag.
🌲 Um námskeiðið
Í gegnum verkefni í náttúrunni vinnum við með aðferðir úr iðjuþjálfun og náttúrumeðferð til að styrkja taugakerfið, auka seiglu og styðja við heilbrigðari lífsstíl.
Áhersla er lögð á að skapa rými þar sem karlar geta hist, unnið saman og átt heiðarlegt samtal.
🌲 Hver tími inniheldur:
• Verkefni í náttúrunni (t.d. tálgun, byggja upp eld, skýli o.fl.)
• Hreyfingu og tengingu við líkamann
• Fræðslu um streitu, jafnvægi og líðan út frá karllægum hlutverkum
• Samtal og ígrundun í hópi
🌲 Við hittumst einu sinni í viku í sex vikur í náttúru í nærumhverfi höfuðborgarsvæðis.
🌲 Leiðbeinendur
Alda Pálsdóttir og Harpa Ýr Karínardóttir
Áfalla- og tengslamiðaðir iðjuþjálfar og sérfræðingar í náttúrumeðferð.
Takmarkaður fjöldi þátttakenda til að tryggja gott rými fyrir hópinn.
Event Venue
Sundagarðar 2, 2. hæð, 104 Reykjavík, Iceland, Sundagarðar 2, 104 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.






