Ösp er æðisleg - Bökuð: Samtal í Mengi

Fri May 08 2026 at 11:00 am to 01:00 pm UTC+00:00

Mengi | Reykjavík

HAKK Gallery
Publisher/HostHAKK Gallery
\u00d6sp er \u00e6\u00f0isleg - B\u00f6ku\u00f0: Samtal \u00ed Mengi
Advertisement
NÁTTÚRULEIKMYND
Ösp er æðisleg - Bökuð
Samtal í MENGI, Óðinsgötu 2
Föstudaginn 8. maí kl 11 – 13
Samtal um íslenska ösp og möguleika á nýtingu hennar og íslensks timburs við gerð húsgagna og bygginga.
HAKK Gallery ásamt Skógræktarfélagi Reykjavíkur boða til samtals í MENGI um íslenska ösp sem efnivið í húsgögn og framtíðarmöguleika á nýtingu íslensks timburs fyrir hönnuði og arkitekta. Við gerð sýningarinnar Náttúruleikmynd eftir Studio Brynjar&Veronika í HAKK gallery voru gerðar tilraunir með hitameðhöndlun aspar sem skiluðu góðum árangri.
Teitur Björgvinsson frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur heldur stutta kynningu á viðarvinnslunni í Heiðmörk og fjallar um öspina í víðu samhengi. Gústav Jóhannsson húsgagnasmiður og Brynjar Sigurðarson hönnuður segja frá ferlinu við gerð húsgagnanna í sýningunni og tilraunum með hitameðhöndlaðan við.
Í lokin verður opið samtal og loks rölt yfir í HAKK gallery yfir götuna þar sem hægt verður að skoða sýninguna og njóta léttra veitinga.

Alaskaösp er aðal efniviðurinn í verkum sýningarinnar Náttúruleikmynd í HAKK gallery. Hún er ein hraðvaxnasta trjátegund landsins og mikið nýtt í skógrækt. Öspin hefur fengið á sig slæmt orð í húsagörðum vegna hins sterka rótarkerfis sem oft er til vandræða en úti í náttúrunni dafnar hún vel og er ef til vill sú viðartegund sem býður upp á hvað fjölbreyttasta nýtingarmöguleika. Í Náttúruleikmynd fær öspin að njóta sín sem góður og nothæfur viður og fær með því ákveðna uppreisn æru.
Asparviðurinn í húsgögnunum á sýningunni er hitameðhöndlaður, en það er aðferð sem á rætur að rekja langt aftur í aldir þegar viður var kolaður til að verja hann fúa. Síðustu áratugi hefur hitameðhöndlun þróast áfram sem nútímaleg og umhverfisvæn aðferð til að auka styrk og endingu timburs án meðhöndlunar með mengandi eða óumhverfisvænum efnum.
Fyrir sýninguna voru tilraunir gerðar með hitameðhöndlun á ýmsum viðartegundum frá Skógræktarfélag Reykjavíkur í nánu samstarfi við Gústav Jóhannsson húsgagnasmið. Tilraunirnar hafa tekist vel og þrátt fyrir að vera á byrjunarstigi benda þær til þess að íslenskan við megi styrkja með þessari aðferð og nota við smíði húsgagna og innréttinga, og sem almennt byggingarefni.
Advertisement

Event Venue

Mengi, Óðinsgata 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

100 manns I H\u00f6nnunarMars
Thu, 07 May at 07:00 pm 100 manns I HönnunarMars

Hverfisgata 4, 101 Reykjavíkurborg, Ísland

Af hverju hl\u00e6jum vi\u00f0? - Opinn fyrirlestur!
Thu, 07 May at 07:30 pm Af hverju hlæjum við? - Opinn fyrirlestur!

Lífspekifélagið

Kirtan me\u00f0 Glimmer Mysterium Blissband
Thu, 07 May at 08:00 pm Kirtan með Glimmer Mysterium Blissband

Yogavin

Gusa, m\u00f6ntrur og cacao \ud83d\udd25\ud83d\udca6 N\u00fd dagsetning
Thu, 07 May at 08:00 pm Gusa, möntrur og cacao 🔥💦 Ný dagsetning

Kría fargufa

F\u00e1\u00f0u \u00fe\u00e9r kr\u00edu
Fri, 08 May at 12:00 pm Fáðu þér kríu

Hotel Holt, Reykjavik

Salsa & bachata danshelgi \u00e1 H\u00f3tel Varmalandi
Fri, 08 May at 04:00 pm Salsa & bachata danshelgi á Hótel Varmalandi

Hótel Varmaland

Vatnask\u00f3gur a\u00f0 vori 2026
Fri, 08 May at 04:00 pm Vatnaskógur að vori 2026

Vatnaskógur

Silkiprent n\u00e1mskei\u00f0 me\u00f0 S\u00f6ru Mar\u00edu
Fri, 08 May at 05:00 pm Silkiprent námskeið með Söru Maríu

Rafstöðvarvegur 1a

SUSKIN - DESIGN MARCH
Fri, 08 May at 05:00 pm SUSKIN - DESIGN MARCH

Norræna húsið The Nordic House

Welcome to the opening of Threads of Connection - DesignMarch 2026
Fri, 08 May at 05:00 pm Welcome to the opening of Threads of Connection - DesignMarch 2026

Sæmundargata 11, 101 Reykjavík, Iceland

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events