Advertisement
„Ferhyrndur kassi með handfangi hannaður til að innihalda föt ferðalangs og persónulega muni hans.“Þannig skilgreinir pólsk orðabók ferðatösku. Ef við skoðum sögu ferðatöskunnar þá getum við séð skýrt samband þróunar hennar við uppgang fjölda samgangna og ferðaþjónustu. Fjarlæg lönd, sem áður voru ekki aðgengileg fyrir marga, lönd sem lýst voru í sögnum, eru í dag möguleg fyrir fólk að heimsækja.
Ferðataskan opnar dyr að hinum víða heimi. Ferðataskan veitir frelsi. Ferðataskan vekur forvitni. Ferðataskan er verkfæri til að snerta þá ráðgátu sem áður var óaðgengileg. En ferðataskan setur líka einnig takmarkanir.
Hvernig er hægt að pakka öllum nauðsynlegum hlutum fyrir í lítilli ferðatösku? Mikilvægt er að undanskilja allt sem ekki er nauðsynlegt. Velja lífsstíls og viðhorf naumhyggjunar, að minnsta kosti tímabundið meðan á ferð stendur. Skipuleggja, gera ráð fyrir og íhuga. Skyndilega verða allir þeir hlutir sem venjulega auðvelda daglegt líf að óþarfa byrði.
En hvað ef hægt væri að pakka sýningu í ferðatösku? Slíka spurningu spyrði Marek Sapetto sig á 80. áratugnum þegar hann hugsaði um erfiða pólitíska stöðu í heimalandi sínu. Hann skipulagði smásýningar í heimahúsum og vinnustofum og fór þannig fram hjá skipulagslegum takmörkunum ríkisrekinna gallería. Hann breytti ferðatöskunni í tákn tjáningarfrelsis og sjálfstæðis.
Að fyrirmynd Marek Sapetto, ákvað fyrrverandi prófessor í Listaháskólanum í Varsjá ásamt tengdum hópi listamanna frá Listaháskólanum einnig að nota ferðatöskuna sem tækifæri og áskorun. Þrátt fyrir ólíkan pólitískan og samfélagslegan veruleika er þörfin fyrir að leita nýrra leiða og ná til áhorfenda en viðeigandi.Lítil form listaverkanna knýja fram breytingu á myndrænni hugsun yfir í skýr skilaboð. Litlu listaverkin hjálpa til við að yfirstíga hindranir, ná til fjarlægra staða og efla menningarlegt samtal. Ferðataskan verður verkfæri til að komast fram hjá hægfara, stofnanabundnum ferlum og breytir oft á tíðum þreytandi undirbúningi sýningar í sjálfsprottið ævintýri.
Við vonum að þessi verk muni á hnitmiðaðan og áhrifaríkan hátt kynna eðli sköpunar þeirra listamanna sem hér eru sýndir og í gegnum þá veita innsýn í brot af hinum ríka og fjölbreytta menningararfi Myndlistarakademíunnar í Varsjá.
Listamenn:
Wojciech Adam Bański
Katarzyna Dyjewska
Anna Jankowicz
Łukasz Jankowicz
Marcin Jurkiewicz
Przemysław Klimek
Marcin Kozłowski
Marcin Kozłowski jr
Grzegorz Mroczkowski
Alina Picazio
Sylwester Piędziejewski
Paweł Pogorzelski
Igor Przybylski
Jacek Staszewski
Piotr Wachowski
Artur Winiarski
Sýningarstjórn:
Magdalena Maria Urbanek-Banska
Wojciech Adam Bański
Marcin Kozłowski
Elvar Gunnarsson
Grafísk hönnun: Elvar Gunnarsson
Sérstök sýningaropnun verður fimmtudaginn 9. apríl frá 18:00-20:00 og þú ert velkomin !
Aðrir opnunartímar:
Fös. 10. apr 16:00 - 20:00
Lau. 11. apr 13:00 -17:00
Sun. 12. apr 14:00 - 17:00
LG // Litla Gallerý er styrkt af Menningar og ferðamálanefnd
Hafnarfjarðarbæjar vegna viðburðarins
-----------------------------
In Between The Worlds - The first ever suitcase exhibition
of polish paintings in iceland
“A rectangular case with a handle designed to hold a traveler's clothing and personal articles”
That’s all a dictionary would say about a suitcase. If we were to look closely at this invention’s history, we would see a clear link between its development and the rise of tourism and mass transit. Distant lands, once available only to a few, are easily accessible to everyone today. A suitcase opens the door to the wide world. A suitcase gives freedom. A suitcase arouses curiosity. A suitcase is a tool to grasp a mystery previously beyond reach.
A suitcase, however, enforces limits. How are we supposed to put all the things we need for travel in one small box? We need to radically cut out everything that is not necessary. To choose a minimalist lifestyle, if only for the length of the journey. To plan, to anticipate, to think through. Now, suddenly, all the things created to make our life easier become an unnecessary burden.
And what if one were to pack an exhibition into a suitcase? This was the question Marek Sapetto posed in the 1980s, facing the difficult political situation in his country. He organised a series of miniature exhibitions in private studios and apartments, bypassing the structural constraints of official state galleries. He transformed the suitcase into a symbol of freedom of speech, independence and swift, precise action.
Following the example of Marek Sapetto, a former professor at the Academy of Fine Arts in Warsaw, a group of artists affiliated with the school decides to treat the suitcase as both an opportunity and a challenge. Despite the radically different political and social context, the need to seek new paths to reach the audience remains relevant. The small formats of the works enforce a shift in visual thinking towards precise messages. They allow us to overcome logistical difficulties, to reach distant locations, to intensify cultural dialogue. The suitcase now becomes a tool for bypassing the slow institutional procedures and turns exhausting preparations into a spontaneous adventure.
We hope that these works will briefly and precisely, in a few “visual words”, present the nature of the work of participating artists and, through them - a glimpse of the rich and diverse heritage of the Academy of Fine Arts in Warsaw.
Artists:
Wojciech Adam Bański
Katarzyna Dyjewska
Anna Jankowicz
Łukasz Jankowicz
Marcin Jurkiewicz
Przemysław Klimek
Marcin Kozłowski
Marcin Kozłowski jr
Grzegorz Mroczkowski
Alina Picazio
Sylwester Piędziejewski
Paweł Pogorzelski
Igor Przybylski
Jacek Staszewski
Piotr Wachowski
Artur Winiarski
Curated by:
Magdalena Maria Urbanek-Banska
Wojciech Adam Bański
Marcin Kozłowski
Elvar Gunnarsson
Graphics by: Elvar Gunnarsson
There will be a special exhibition opening on Thursday, April 9th from 18:00-20:00 and you are welcome!
Other opening hours
Fri 10th Apr 16:00 - 20:00
Sat 11th Apr 13:00 - 17:00
Sun 12th Apr 14:00 - 17:00
LG // Litla Gallerý is sponsored by the Culture and Tourism Committee of Hafnarfjörður for this event.
Advertisement
Event Venue
Strandgata 19, 220 Hafnarfjörður, Iceland, Strandgata 19, 220 Hafnarfjarðarkaupstaður, Ísland, Hafnarfjörður, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.








