Advertisement
Verið velkomin á opnun sýningarinnar Það sætir sjávarföllum Í Hermu, Hverfisgötu 4 þann 15. Ágúst kl. 17:00. Sýningin mun standa yfir dagana 15. - 17. gúst.
Fegurð hreyfist eins og sjávarföllin - færist til, hörfar, snýr aftur. Rétt eins og flóð og fjara er fegurðin aldrei kyrrstæð, heldur fljótandi. Oft streymir hún inn leiftrandi og óumflýjanleg. Öðrum stundum læðist hún undir yfirborðinu, næstum ósýnileg og biður um að sér verði eftir tekið.
Fegurð er óljós, aldrei einstök, aldrei föst. Hún breytist með tíma, menningu, samhengi. Hún mótast af augnarráði, hreyfanlegt hugtak sem er stundum ákveðið fyrir okkur. Hún umlykur okkur, steypt inn í það venjulega, því sem hefur verið gleymt, því sem hefur verið hent. Síbreytileiki fegurðarinnar kallar á þá hugsun að tilvera hennar er ef til vill allt um kring, í hverjum hlut, á hverjum fleti.
Fegurð finnst ekki alltaf, hana þarf að afhjúpa.
Eins og málverk hengt í hvítum sal eða steinn steyptur í gull, kemur fegurð oft fram í gegnum samhengi. Ramminn, stallurinn, sviðsljósið. Þetta skapar ekki gildi, það afhjúpar það. Það biður okkur að horfa aftur. Að veita athygli.
Fegurð er alls staðar.
Ekki vegna þess að hún samræmist stöðlum, heldur vegna þess að hún er til og á réttu augnabliki, réttri umgjörð, réttu augnaráði, verður hún sýnileg.
Opnunartímar:
Föstudagur 15. ágúst: 17:00 - 20:00
Laugardagur 16. ágúst: 14:00 - 18:00
Sunnudagur 17. ágúst: 14:00 - 18:00
—
We invite you to the opening of the exhibition Það sætir sjávarföllum, that
will take place at Herma, Hverfisgata 4, on August 15th at 17:00.
The exhibition will run from August 15th to 17th.
Beauty moves like the tides - flowing, receding, returning. Like the tide and the shore, beauty is never static, but fluid. Often it flows in, flashing and inescapable. Other times it creeps beneath the surface, almost invisible, waiting to be noticed.
Beauty is ambiguous, never unique nor fixed. It changes with time, culture and context. It is shaped by the eye, a fluctuating concept that is sometimes determined for us. It surrounds us, cast into the ordinary, the forgotten, the discarded. The ever-changing nature of beauty invites the thought that perhaps its existence is all around us, in every object, on every surface.
Beauty is not always found, it sometimes must be discovered. Like a painting hung in a white hall or a stone cast in gold, beauty often emerges through context. The frame, the pedestal, the spotlight. This does not create value, it reveals it. It asks us to look again. To pay attention.
Beauty is everywhere.
Not because it conforms to standards, but because given the right moment, the right setting and the right gaze, it becomes visible.
Opening hours:
Friday 15th: 17:00 - 20:00
Saturday 16th: 14:00 - 18:00
Sunday 17th: 14:00 - 18:00
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Hverfisgata 4, Reykjavík, Iceland