Advertisement
Nexus býður áhugasömum að spila Warhammer 40.000 í spilasal Nexus. Til að taka þátt þarf að mæta með 1000 punkta Warhammer 40.000 her, það er yfirleitt hægt að fá lánaðan her og prófa.
Herinn þinn að uppfylla hefðbundnar reglur um 10th edition heri. (AMK einn Character sem er warlord, ekki meira en 2 af hverri sveit, ekki meira en 4 ef það er battleline sveit.)
Spilaðir verða tveir leikir. Mæting er klk 12:00 og fyrsti leikur byrjar klk 12:15, við spilum báða leikina í röð með stuttum pásum eins og aðstæður krefja. Mótinu lýkur í síðasta lagi klk 18:00.
Veitt verða verðlaun fyrir þáttöku og fyrir málningu eftir fyrsta leik.
Laugardagsmót í Nexus eru ætluð öllum sem hafa áhuga á warhammer og fólk er kvatt til að mæta, slappa af, rúlla teningum og sjá hvað gerist! Nýliðar eru velkomnir, það er yfirleitt lánsher í boði.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Nexus, Álfheimar 74, 104 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland