VORSÆLA - hlédrag með konum í náttúrunni

Thu, 14 May, 2026 at 03:30 pm to Sun, 17 May, 2026 at 02:00 pm UTC+00:00

Helgafell, 606 Svalbarðsstrandarhreppur, Ísland | Akureyri

L\u00e1ra \u221e M\u00f3ar
Publisher/HostLára ∞ Móar
VORS\u00c6LA - hl\u00e9drag me\u00f0 konum \u00ed n\u00e1tt\u00farunni
Advertisement
🌿 VORSÆLA 🌿
Hlédrag með konum í náttúrunni
Fjögurra daga hlédrag og náttúruævintýri
📅 14.–17. maí
Lára og María bjóða konum norður í náttúruparadís þar sem dvalið verður á hlédragssetrinu Helgafelli í Eyjafirði.
Hér verður rýmið til þess að koma heim í kyrrðina, finna vorið vakna innra með sér, virkja lífsorkuna og tendra neistann.
Endurtengjast sjálfri sér, líkamanum og andanum, dvelja í nánd við náttúruna, finna frumkraftana og stíga þaðan inn í sumarið.
✨Boðið verður upp á:
• Náttúruferðir
• Göngur
• Morguniðkun
• Jóga nidra
• Kundalini jóga
• Dans
• Tónheilun
• Söng
• Kakóseremóníur
• Sánaritúal
• Dagbókarskrif
• Dýrindis grænmetisfæði
• Frítíma til að hvílast og einfaldlega vera til
🕊️ Tímasetningar
Dagskráin hefst kl. 15:30 á fimmtudegi og lýkur með sameiginlegum hádegisverði á sunnudegi.
💫 Verð: 120.000 kr.
Innifalið:
• Gisting í tveggja kvenna herbergjum
• Þrjár máltíðir á dag
• Öll kennsla og dagskrá
• Gufa, sjóböð og kalt kar
(Einstaklingsherbergi í boði gegn 15.000 kr. aukagjaldi ef laust er)
Til að staðfesta pláss:
Sendu tölvupóst á 👉 [email protected]
🌸 Þetta er fyrir þig sem ert tilbúin að:
• Bráðna inn í traust til lífsins og náttúrunnar.
• Hlusta á hvísl vindsins, hráleika jarðar, flæði vatnsins og kraft eldsins.
• Hvíla í nærveru kvenna sem heyra þig og sjá.
• Opna fyrir eitthvað nýtt.
• Hrista upp í tilverunni og endurheimta lífsneistann.
• Hreyfa við því sem er staðnað eða liggur í dvala.
• Skapa og dansa með frumkröftum lífs og lands.
• Þjálfa færni til að spinna með því sem er þér hulið.
⚠️ Mikilvægt að hafa í huga:
Þátttakendur þurfa að geta gengið á ójöfnu undirlagi upp hóla og fell. Einnig er mikilvægt að konur finni traust til rýmishaldara og séu tilbúnar að hlusta á hópinn og náttúruna í takt við það sem hver dagur býður.
🌿 Lára & María leiða helgina
Lára er jógakennari, tónlistarkona og kynjafræðingur með menntun í sjamanisma og höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun.
María er dansari, sjúkraþjálfari, jóga nidra kennari og doula með menntun í höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun. Hún elskar að halda rými þar sem fólk getur dýpkað tengslin við sjálft sig, náttúruna og lífið.
Láru og Maríu dreymir um að skapa heiðarlegt rými þar sem konur geta verið þær sjálfar. Þar sem þær geta tímabundið lagt frá sér hlutverkin sín, ferðast nær sér og eflt tengsl við sig sjálfar og aðrar konur.
Rými þar sem má vera glöð, þreytt, spennt, sorgmædd, hrædd, berskjölduð eða bjartsýn. Þar sem við göngumst við líðan okkar og tilfinningum og æfum okkur í að sýna sjálfum okkur og öðrum kærleika, hlustun og virðingu.
🌊 KONUR Í NÁTTÚRUNNI
Er lifandi viðburðaröð sem slær í takt við árstíðir og náttúru landsins: serimóníur, ævintýri úti í móa, í nánd við jörðina og fossana, svitahof og sjóböð, nærandi samvera með konum og ræktun innri tengingar, frelsis og sambandsins við jörðina.
Hugmyndin kviknaði árið 2022 hjá Maríu Carrasco og Láru Rúnarsdóttur, og síðan þá hafa þær haldið fjölbreytta viðburði, ævintýri og námskeið fyrir konur í náttúrunni.
Advertisement

Event Venue

Helgafell, 606 Svalbarðsstrandarhreppur, Ísland, Akureyri, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Akureyri

Sj\u00f3naukinn 2026: L\u00e6rd\u00f3mur, lausnir og lei\u00f0in \u00e1fram
Tue, 19 May at 09:00 am Sjónaukinn 2026: Lærdómur, lausnir og leiðin áfram

Háskólinn á Akureyri

\u00c9g skal syngja fyrir \u00feig - Hof, Akureyri
Sat, 23 May at 09:00 pm Ég skal syngja fyrir þig - Hof, Akureyri

Akureyri, Iceland

\ud83c\udf8a AFM\u00c6LIST\u00d3NLEIKAR \ud83c\udf8a
Mon, 25 May at 08:00 pm 🎊 AFMÆLISTÓNLEIKAR 🎊

Fosshótel Húsavík

G\u00edtart\u00f3nleikar me\u00f0 Loo Sim Ying \u00ed Reykjahl\u00ed\u00f0arkirkju
Mon, 25 May at 08:00 pm Gítartónleikar með Loo Sim Ying í Reykjahlíðarkirkju

Reykjahlíðarkirkja

Bl\u00fasband \u00d3skars Loga
Thu, 28 May at 09:00 pm Blúsband Óskars Loga

Hafnarstræti 96, 600 Akureyri, Iceland

Hraunhlaupi\u00f0 2026 \/ The Lava Run 2026
Fri, 29 May at 03:00 pm Hraunhlaupið 2026 / The Lava Run 2026

Mývatn

Akureyri is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Akureyri Events