Advertisement
Ungmennafélagið Vísir tilkynnir!! Sléttu ári frá fyrstu skóflustungu! Vígslumót á glæsilegum Vísisvelli við Hrollaugsstaði í Suðursveit helgina 26.-28. júní! Stórkostleg íþróttaveisla! 🥳Að tilefni afmælis Alþjóða ólympíunefndarinnar mun ÍSÍ "hita upp" með því að halda uppá ólympíudaginn á föstudeginum 26. júní. Þar hvetjum við alla unga sem aldna til að taka þátt í glensi með Vísi og ÍSÍ þar sem boðið verður uppá allskyns íþróttir við allra hæfi.
Frjálsíþróttakeppnin sjálf hefst svo á laugardegi en þar munu nokkur af fremsta frjálsíþróttafólki Íslands stíga á stokk og etv. gera atlögur að Íslandsmetunum í sínum greinum. En auk landsliðsfólks munu aðrir gestir og heimamenn fá tækifæri til að sýna hvað í þeim býr og eru allir hvattir til að reyna sig í sem flestum greinum. Þær greinar sem keppt verður í eru listaðar upp hér að neðan. Nákvæm dagskrá verður auglýst þegar hún liggur fyrir en þangað til biðjum við ykkur að taka helgina frá og skrá hana í dagatalið! 📆
Það skal tekið fram að stefnt er að mótið verði skráð sem Global calendar mót, sem þíðir að árangur á mótinu telst gildur gagnvart lágmörkum á stórmót erlendis og gefur möguleika á að setja lögleg Íslandsmet. Ef allt gengur að óskum munum við sjá fyrsta skráða Íslandsmetið sem sett hefur verið í Suðursveit þann 27. júní 2026.
Keppt verður í eftirfarandi greinum:
✔️ 60m hlaup og 60m grindahlaup
✔️ Stangarstökk, hástökk, langstökk, þrístökk
✔️ Sleggjukast, kúluvarp, kringlukast, spjótkast
Keppt í aldursflokkum:
6-9 ára fjölþraut (60m, langst og boltakast)
10-11 ára (60m, langst, hást, kúla, spjót)
12-13 ára (60m, langst, hást, kúla, spjót, 60m grind, kringla)
14-15 ára (60m, langst, hást, kúla, spjót, 60m grind, kringla, þríst)
16-34 ára (Allar greinar!)
35 ára og eldri! ("Öldungar" eru hvattir til að hafa með sér íþróttaskóna)
Einnig verður ýmislegt skemmtilegt í boði fyrir yngstu börnin, hoppukastali o.fl. auk veitingasölu á staðnum!
Við Hrollaugsstaði er tjaldstæði og er það innifalið í keppnisgjöldum, rafmagn fyrir tjaldgesti er takmarkað og þarf að greiða aukalega fyrir það. Keppnisgjöld eru 5.000 kr fyrir hvern keppanda óháð fjölda greina sem keppt er í. Systkinaafsláttur er veittur og kostar þá 3.000 kr fyrir hvert auka systkini. Ekki er greitt fyrir aðra fjölskyldumeðlimi/áhorfendur! Þetta verður hátíðis dagur sem enginn vill missa af! Við munum fljótlega setja inn skráningarformið fyrir keppendur. Fylgist með!
Við hlökkum til að eiga frábæra helgi með ykkur!
Kær kveðja, stjórn umf. Vísis í Suðursveit.
Advertisement
Event Venue
Hrollaugsstaðir, 781 Sveitarfélagið Hornafjörður, Ísland, Kirkjubaejarklaustur, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

