Advertisement
27. mars kl. 17:00-20:00 opnar Sigmundur P. F. einkasýninguna Utsuri.Sýningin samanstendur af nýjum málverkum unnum með náttúrulegum litum frá Íslandi og Japan í bland við ýmsa jarðliti.
Utsuri er áframhaldandi rannsókn Sigmundar á sambandi sínu við náttúruna í gegnum textílverk unnin með náttúrulegri litun. Verkin sækja innblástur í endurkast í náttúrunni, sérstaklega í speglun á yfirborði vatns, og í þá reynslu að spegla sjálfan sig í landslaginu. Á tímum þar sem allt keppist um athygli getur það verið róttæk athöfn í sjálfu sér að staldra við og horfa. Titillinn Utsuri vísar til endurkasts og umbreytingar.
Verkin verða til í síendurteknum litunarferlum með náttúrulegum litum frá Íslandi og Japan í bland við ýmsa jarðliti. Hver litur er blandaður frá grunni og byggður upp í mörgum lögum á strigann. Þótt litapallettan byggi á margra ára rannsóknum á náttúrulegri litun er málverkið sjálft unnið eftir innsæi á vinnustofunni. Notaðir eru hefðbundnir japanskir burstar sem tengjast Katazome-litun, þar sem efni, litir og aðferð fá að njóta sín.
Efnið sjálft gegnir mikilvægu hlutverki í verkunum. Stærri verkin eru unnin á belgískan hörstriga sem á sér langa hefð í málverki, en minni verkin eru unnin á ramie-efni frá Kyoto sem á sér einnig langa hefð í japanskri textílmenningu. Eiginleikar efnanna hafa bein áhrif á hvernig náttúrulegu litirnir bregðast við og setjast í verkin.
Þó verkin séu óhlutbundin eru þau nátengd landslaginu sem litirnir koma frá. Þau sýna ekki tiltekna staði eða landslag, en geta vakið slíkar tengingar í gegnum lit, rytma og yfirborð, líkt og endurkast í vatni getur minnt á fjarlæga staði.
Utsuri er jafnframt fyrsta einkasýning Sigmundar í kjölfar sýningarinnar Núna / Ima sem haldin var í Kyoto árið 2025. Þótt verkin eigi rætur í textíl og náttúrulegri litun færist áherslan hér nær málverkinu sjálfu, þar sem litur, efni og aðferð fá að leiða verkin áfram.
Öll velkomin á opnun.
Opening - Utsuri
March 27, 17:00–20:00
-
Sigmundur P. F. opens the exhibition Utsuri.
The exhibition presents paintings made with natural dyes from Iceland and Japan combined with various earth pigments.
The works take inspiration from reflections in nature, particularly the shifting surfaces of water, and from the act of reflection itself. They are created through repeated dyeing processes where colours are mixed from scratch and built up through multiple layers.
Though abstract, the works remain closely tied to the landscape the colours originate from. They do not depict specific places, yet they often evoke them through colour, rhythm and surface, much like reflections in water can resemble distant horizons or shifting terrain.
Opening: 27.03 — 17:00-20:00
Exhibition dates: 28.03 — 05.04
Opnunartímar / Opening hours: Alla daga / Daily from 12:00 - 18:00
Advertisement
Event Venue
Hverfisgata 4, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











