Advertisement
Um hundrað ungmenni úr tónlistarskólum landsins taka þátt í hljómsveitarnámskeiði Sinfóníuhljómsveitar Íslands ár hvert undir leiðsögn atvinnuhljóðfæraleikara og hljómsveitarstjóra. Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands hélt sína fyrstu tónleika haustið 2009 í Háskólabíói og hefur síðan vakið verðskuldaða athygli en sveitin hlaut viðurkenninguna „Bjartasta vonin“ á Íslensku tónlistarverðlaununum 2016. Hljómsveitin í ár er skipuð tónlistarnemum víðs vegar að á landinu sem valdir voru úr stórum hópi ungmenna sem leikið höfðu um sæti í sveitinni með prufuspili.Ungsveitin hefur vakið athygli fyrir samstilltan flutning og einstaka túlkun og á þessu starfsári takast þau á við hina mögnuðu og dramatísku fjórðu sinfóníu Tsjajkovskíjs. Fjórða sinfónían hefur löngum verið talin „sjálfsævisöguleg“ og skipar hún sér þannig í hóp verka á borð við fimmtu sinfóníu Beethovens og Draumórasinfóníu Berliozar. Hljómsveitarstjóri að þessu sinni er Nathanaël Iselin, fyrrum staðarhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Efnisskrá
Pjotr Tsjajkovskíj Sinfónía nr. 4
Hljómsveitarstjóri
Nathanaël Iselin
Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands
//
About a hundred young people from Iceland's music schools participate in the Iceland Symphony Orchestra's orchestral course each year under the guidance of professional instrumentalists and conductors. The Iceland Symphony Youth Orchestra held its first concert in the fall of 2009 and has since attracted well-deserved attention, with the Youth Orchestra receiving the "Brightest Hope" award at the 2016 Icelandic Music Awards. This year's orchestra is made up of music students from across the country who were selected from a large group of young people who had auditioned for a place in the orchestra.
The Youth Orchestra is known for its synchronised performance and unique interpretation, and this year they will tackle Tchaikovsky's amazing and dramatic Fourth Symphony. The Fourth Symphony has long been considered "autobiographical," placing it in a group of works such as Beethoven's Fifth Symphony and Berlioz's Symphonie fantastique.
Program
Pyotr Tchaikovsky Symphony No. 4
Conductor
Nathanaël Iselin
ISO Youth Orchestra
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Eldborg, Harpa, Austurbakka 2, Austurbakki 2,Reykjavík, Iceland