Advertisement
FULLBÓKAÐ!Töfrar Tónakistunnar er skapandi smiðja þar sem börn á aldrinum 7-10 ára fá að kynnast tónlist á skemmtilegan hátt. Þátttakendur semja saman eigin texta, búa til lag, prófa sig áfram í spuna og taka þátt í fjölbreyttum tónlistarleikjum úr kennsluefni Tónakistunnar. Börnin fá tækifæri til þess að prófa ýmis slagverkshljóðfæri og um leið efla ímyndunarafl sitt.
Í smiðjunni verður lögð áhersla á sköpunargleði, sjálfstyrkingu og samvinnu, í öruggu og hvetjandi umhverfi.
Í lok smiðjunnar fá börnin upptöku af laginu sem þau sömdu saman, sem minningu og afrakstur smiðjunnar.
Leiðbeinendur smiðjunnar eru Sæbjörg Eva Hlynsdóttir, Kristbjörg Ásta Viðarsdóttir og Svava Rún Steingrímsdóttir. Allar starfa þær við tónlistarkennslu, hafa lokið menntun frá tónlistardeild Listaháskóla Íslands og hafa sérhæft sig í skapandi vinnu með börnum.
Smiðjan, sem er hluti af Barnamenningarhátíð á Akureyri, er tveggja daga smiðja (11.-12. apríl) sem er í þrjár klukkustundir í senn (13:00-16:00). Skráning nauðsynleg og þátttakendur koma báða daga smiðjunnar.
AÐGANGUR ER ÓKEYPIS!
Engin laus pláss eftir.
Smiðjan verður í tónmenntastofunni í Oddeyrarskóla, inngangur í austurenda, á móti leiksvæði.
Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrar.
Advertisement
Event Venue
Oddeyrarskóli, Víðivellir, Víðivellir, 600 Akureyrarbær, Ísland, Akureyri, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











