Advertisement
Töfrabrögð og sjónhverfingar verða í forgrunni þegar Lalli töframaður og Sinfóníuhljómsveit Íslands sameina krafta sína á tónleikum í Litla tónsprotanum. Dagskráin verður ekki síður töfrandi þar sem mörg eftirlætislög hljóma, eins og Smile eftir Charlie Chaplin, Lærisveinn galdrameistarans eftir Dukas og vinsæl lög úr söngleikjum á borð við Frozen og Mary Poppins.Sýningar Lalla töframanns njóta vinsælda hjá börnum á öllum aldri og á tónleikunum verður mögnuðum töfrabrögðum hans varpað upp á stóra tjaldið í Eldborg svo allir fái notið þeirra sem best.
Tónleikarnir, sem eru sniðnir að ungum áheyrendum, eru um klukkustundarlangir, án hlés.
Efnisskrá
Fjölbreytt og skemmtileg tónlist
Hljómsveitarstjóri
Richard Schwennicke
Kynnir
Lalli töframaður
//
Magic tricks and optical illusions will be at the forefront when Lalli the Magician and the Iceland Symphony Orchestra join forces in a concert in the Family Concert series. The program will be no less magical, featuring many favourite songs, such as Smile by Charlie Chaplin, The Sorcerer's Apprentice by Dukas, and popular songs from musicals such as Frozen and Mary Poppins.
Lalli the Magician's shows are popular with children of all ages, and during the concert, his amazing magic tricks will be projected onto the big screen in Eldborg Hall so that everyone can enjoy them to the fullest.
The concert, which is geared towards young audiences, is about an hour long, without an intermission.
Conductor
Richard Schwennicke
Host
Lalli the Magician
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Eldborg, Harpa, Austurbakka 2, Austurbakki 2,Reykjavík, Iceland