Advertisement
Kolbrún og Danni munu leiða þig með innsæi og kunnáttu í gegnum djúpa heilun þriðjudaginn 3. desember kl. 20:30. Stundin hefst á hjartaopnandi Cacao drykk og áruhreinsun, þú finnur síðan ásetning fyrir komandi tíma, kemur þér vel fyrir og leyfir þér að gefa eftir og slaka á meðan Kolbrún og Danni heila þig með tónum og reiki.Hvernig virkar heilunin? Það má segja að við skiptumst upp í orku-, tilfinninga- og efnislíkama. Í tónheilun fá allir líkamar þínir víbring og hreyfingu og endurhlaðast. Heilun með tónum hreyfir við staðnaðri orku, getur létt á verkjum og bætt svefn ásamt ótal fleiri jákvæðum breytingum sem hver upplifir á sinn einstaka hátt. Reiki er japanskt náttúrulækningakerfi og er heilun með snertingu*, þú leyfir orkunni að hreinsa burt staðnaða orku og hleypir öllu því sem þú þarft ekki á að halda úr efnis-, orku- og tilinningalíkama.
Helstu upplýsingar:
Hvað: Tónheilun og Reiki með Kolbrúnu og Danna
Hvar: Yoga Shala Reykjavík, Skeifan 7.
Hvenær: þriðjudaginn 3. desember
Tímasetning: 20:30-22:00
Verð: 6.900 kr
Nánar: yogashala.is/tonheilun
Kolbrún og Danni eru bæði tónheilarar og reikimeistarar og munu skapa einstaka nærandi stund fyrir líkama og sál. Á viðburðinum verða einnig aðstoðar reiki heilarar þeim innan handar til að gera upplifunina ennþá magnaðri. Það eins sem þú þarft að gera er að leyfa þér að gefa eftir og slaka á og njóta þess að taka á móti tónheilun og reiki.
*ath. ef þú vilt ekki fá snertingu getur þú þegið reiki á annan hátt.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Skeifan 7,2nd and 3rd floor, 108 Reykjavík, Iceland, Skeifan 7, 108 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland
Tickets