Advertisement
Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með haustdagskrá sína með spennandi tónleikum miðvikudaginn 26. nóvember kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum kemur fram tríó píanóleikarans Sunnu Gunnlaugs. Tríóið fagnaði útgáfu á sinni sjöttu plötu í ágúst s.l. og má heyra áhrif Keith Jarrett’s á spilamennsku Sunnu í titillaginu “Go Round Merry” en tónsmíðar hennar og meðspilara hennar sína að þau eru öll á sömu blaðsíðu og samanlögð áhrifa þeirra allt frá U2, Vince Guaraldi, Charlie Haden og Bill Frisell gefa þessu norræna hljómandi jazztríói einstakan tón. Ásamt Sunnu koma fram Þorgrímur Jónsson bassaleikari og Scott McLemore sem leikur á trommur.Sunna Gunnlaugs Trio
Sunna Gunnlaugs Trio, which has been touring internationally since 2011, celebrated the release of their 6th album last August. Pianist Sunna revisits her deep affinity for Keith Jarrett with the title track “Go Round Merry". Likewise, compositions from her rhythm section show they are all on the same page. Hints of country, pop and etherial open-ness make this album unique from the U2 cover to her Vince Guaraldi inspired “Be Like Charlie.”
,,Cool atmospherics and meditative quality draws on Icelandic folk melodies and brooding soundscapes, yet internally has an unhurried Bill Evans-like swing and an appetite to explore the inner soul.” —Jon Newey, Jazzwise
Sunna Gunnlaugs, piano
Þorgrímur Jónsson, bass
Scott McLemore, drums
The concert starts at 20 @ Björtuloft, Harpa Concert House. Tickets ISK 4900.
Spennandi haustdagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í miðjan desember. Múlinn er á sínu 28. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.
Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu. Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna.
Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 4900 og 3600 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu.
Advertisement
Event Venue
Harpa Concert Hall and Conference Centre, 101 Reykjavík, Iceland, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.