Advertisement
Nokkrir fyrrum hestasveinar sem aðstoðuðu veiðimenn við baráttuna við laxinn í Kjarrá ætla að koma í Skemmuna og segja okkur frá veru sinni og störfum við ánna. Þeir Arnór Sigurjónsson, Einar Sigurjónsson og Stefán Þórarinsson, höfundar bókarinnar Kjarrá - Síðustu hestasveinarnir á Víghól, munu spjalla um efni bókarinnar og lífið við Kjarrá. Boðið verður upp á kaffisopa og með því. Bókin verður jafnframt til sölu fyrir áhugasama.
Viðburðurinn er hluti af viðburðadagskrá Landbúnaðarsafnsins og er styrkt af Safnaráði Íslands.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Hvanneyri, 311 Hvanneyri, Iceland, Skemman Kaffihus, 311 Borgarbyggð, Ísland,Hvanneyri, Borgarfjardarsysla, Iceland, Reykjavík