Advertisement
Anna Sigríður Helgadóttir söngkona leiðir jólalegan samsöng við meðleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur píanóleikara. Lögin sem sungin eru ættu að vera flestum kunnug og að þessu sinni tengjast þau jólahátíðinni. Textanum verður varpað á skjá svo ekkert ætti að stoppa söngelskandi gesti safnsins.
Öll velkomin og engrar söngreynslu krafist, hver syngur með sínu nefi og höfum gaman saman!
Anna Sigríður stundaði söngnám við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Söngskólann í Reykjavík, auk þess sem hún sótti einkatíma hjá Prof. Rina Malatrasi á Ítalíu. Anna Sigríður hefur tekið þátt í margskonar tónlistarflutningi, til að mynda einsöngstónleikum, óperu- og óperettuppfærslum, jazztónleikum og gospeltónleikum. Á árunum 2001 - 2012 starfaði hún sem tónlistarstjóri við Fríkirkjuna þar sem hún stjórnaði kór og söng við athafnir og einnig var hún leiðtogi í barna- og unglingastarfi Árbæjarkirkju um nokkurra ára skeið. Þá hefur Anna Sigríður sungið með sönghópunum Hljómeyki, Emil og Bjargræðiskvartettinum.
Aðalheiður Þorsteinsdóttir hefur starfað sem píanóleikari og organisti með fjölda einsöngvara og kóra. Einnig hefur hún sinnt kennslu, útsetningum, tölvusetningu nótnabóka og starfað hjá Íslenskri tónverkamiðstöð.
Nánari upplýsingar veitir:
Katrín Guðmundsdóttir, deildarstjóri
[email protected] | 411 6250
Anna Sigríður Helgadóttir, söngkona
[email protected] | 861-3843
-----------------
Anna Sigríður Helgadóttir, singer, leads sing-along accompanied by pianist Aðalheiður Þorsteinsdóttir.
The songs being sung should be familiar to most, and this time they are all related to the Christmas season. The lyrics will be projected on a screen so nothing should stop the museum’s music-loving guests from joining in.
Everyone is welcome, and no singing experience is required, just sing along in your own way and let’s have fun together!
Anna Sigríður studied singing at the Sigursveinn D. Kristinsson Music School and the Singing School in Reykjavík and also took private lessons with Professor Rina Malatrasi in Italy. She has participated in various musical performances, including solo concerts, opera and operetta productions, jazz concerts, and gospel concerts. From 2001 to 2012, she worked as music director at Fríkirkjan, where she conducted the choir and sang at ceremonies. She also led children and youth activities at Árbæjarkirkja for several years. Anna Sigríður has sung with vocal groups such as Hljómeyki, Emil, and the Bjargræðiskvartettinn.
Aðalheiður Þorsteinsdóttir has worked as a pianist and organist with numerous soloists and choirs. She has also taught music, arranged compositions, typeset sheet music, and worked at the Icelandic Music Information Centre.
For more information, contact:
Katrín Guðmundsdóttir, Department Manager
[email protected] | 411 6250
Anna Sigríður Helgadóttir, Singer
[email protected] | ☎️861-3843
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Borgarbókasafnið Árbæ, Hraunbær 119, 110 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland