Advertisement
Tríó Sunnu Gunnlaugs sem er þekkt fyrir hrífandi blöndu af ljóðrænni fegurð og norrænum áhrifum, hefur skipað sér merkan sess á alþjóðlegu jazzsenunni síðan 2011. Tríóið hefur hljóðritað 5 albúm sem öll hafa fengið glimrandi viðtökur hjá jazzmiðlum víða um heim og hlotið margar tilnefningar til Íslensku Tónlistarverðlaunanna. Sunna Gunnlaugs var valin flytjandi ársins 2015 og 2019 á Íslensku Tónlistarverðlaununum. Von er á nýrri útgáfu frá jazztríói Sunnu Gunnlaugs og verður það 6. albúmið sem þau Sunna, Þorgrímur Jónsson og Scott McLemore vinna saman. Tríóið er á leið í tónleikaferð um Þýskaland en fyrst munu þau leika á tónleikum í Hannesarholti. Tríóið hélt einmit útgáfutónleika í Hannesarholti þegar albúmið Distilled kom út árið 2013 og er því löngu tímabært að tríóið snúi til baka í þetta hljómfallega rými. Tónleikar Tríós Sunnu Gunnlaugs verða 10. maí og hefjast kl 20.Sunna Gunnlaugs-piano
Þorgrímur Jónsson-kontrabassi
Scott McLemore-trommur
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland, Grundarstígur 10, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland
Tickets