Advertisement
Tindur hjólreiðafélag og Hjólaskólinn kynna: Sumarhjólanámskeið í náttúrunni fyrir börn 7-12 ára (2014 - 2019).
Staðsetning: Öskjuhlíð og Norðlingaholt
Markmið námskeiðanna er að skapa hjólagleði og gera hjólreiðar ævintýralegar og eftirsóknarverðar hjá börnum.
Við hjólum í skóginum og æfum helstu tækniatriði hjólreiða sem auka á færni, sjálfstraust og skemmtun á hjólinu. Við æfum hjóla- og umferðarreglurnar, förum í hjólatúra í borginni, og hjólum á alls kyns undirlagi, á stígum, malarvegum og slóðum í náttúrunni og tökum alltaf nesti og pásur á spennandi stöðum.
Fæðingarár: 2014-2019
Aldurs- og getuskiptir hópar og allir hjóla á sínum forsendum, hversu stutt eða langt sem barnið er komið á hjólinu. Allir læra og fá að njóta sín.
Námskeiðin eru fjórir eða fimm dagar í viku, kl. 9 - 11:45 á eftirfarandi dagsetningum í Öskjuhlíð og Norðlingaholti/Heiðmörk.
Takmarkaður fjöldi kemst að þar sem hóparnir eru ekki stórir.
Júní námskeið í Öskjuhlíð og Norðlingaholti:
● Námskeið #1 í Öskjuhlíð 15.-19. júní (4 dagar, frí 17. júní)
● Námskeið #2 í Norðlingaholti 15.-19. júní (4 dagar, frí 17. júní)
● Námskeið #3 í Öskjuhlíð 22. - 26. júní (5 dagar)
● Námskeið #4 í Norðlingaholti 22. - 26. júní (5 dagar)
● Námskeið #5 í Öskjuhlíð 29. júní - 3. júlí (5 dagar)
● Námskeið #6 í Norðlingaholti 29. júní - 3. júlí (5 dagar)
Ágúst námskeið í Öskjuhlíð og Norðlingaholti:
● Námskeið #7 í Öskjuhlíð 4. - 9. ágúst (4 dagar)
● Námskeið #8 í Öskjuhlíð 10.-14. ágúst (5 dagar)
● Námskeið #9 í Norðlingaholti 10.-14. ágúst (5 dagar)
● Námskeið #10 í Öskjuhlíð - 17. - 21. ágúst (5 dagar)
● Námskeið #11 í Norðlingaholti - 17. - 21. ágúst (5 dagar)
Hjól: Fjallahjól með grófum dekkjum. Athuga vel að dekk, bremsur og gírar séu í góðu lagi. Gott er að hafa aukaslöngu ef það skildi springa. Börn skulu koma með nesti með sér (t.d. samloku og ávöxt) og drykk í bakpoka (með breiðum böndum - ekki sundpoka) sem þau geta hjólað með. Einnig þurfa börnin að vera klædd í samræmi við veður hverju sinni. Hjálmaskylda er á námskeiðinu.
Þjálfarar eru sem fyrr Erla Sigurlaug og Þóra Katrín vanar hjólakonur hjá Hjólaskólanum og Tindi en er þetta níunda árið þeirra með sumarhjólanámskeiðin. Eru þær báðar með þjálfarapróf frá ÍSÍ og UCI (alþjóðahjólreiðasambandinu) ásamt því að vera með alþjóðleg fjallahjólakennararéttindi. Munu þær fá fleiri vana hjólaþjálfara og leiðbeinendur með til aðstoðar.
Verð:
Kr. 23.500 fyrir 5 daga námskeið
Kr. 19.500.- fyrir 4 daga námskeið
- 10% systkinafsláttur er af barni nr. 2. - kemur sjálfkrafa við pöntun
Skráning á Abler, sjá flipa (tickets) hér í viðburði.
*ATH. Tindur og Hjólaskólinn:
Geta ekki fellt niður eða endurgreitt námskeiðsgjöld ef afbókað er með minna en viku fyrirvara.
Áskilja sér rétt til að sameina, breyta staðsetningu eða fella námskeið niður á ákveðnum dagsetningum ef ekki fæst næg skráning. Í þeim tilvikum fæst endurgreiðsla eða skráning á annað námskeið sem hentar.
Ef afbókað er með a.m.k. viku fyrirvara fæst 50% endurgreiðsla.
Ef viðkomandi kemst ekki á námskeið er leyfilegt að nafnabreyta.
Frekari upplýsingar og fyrirspurnir: [email protected]
Advertisement
Event Venue
Öskjuhlíð, Strókkur, Varmahlíð, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.







